Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílslys

Sjúkrahúsið á Akureyri, áður fjórðungssjúkrahús.
Sjúkrahúsið á Akureyri, áður fjórðungssjúkrahús. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Tveir ökumenn voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri eftir árekstur á gatnamótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri laust eftir klukkan þrjú í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið að meiðsl ökumannanna séu minni háttar, en að sögn lögreglu var áreksturinn „ósköp venjulegt umferðarslys“. „Það vantaði aðeins upp á athyglina,“ segir lögreglumaður í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert