Hryggurinn ofan Seyðisfjarðar hreyfist enn

Frá Seyðisfirði í sumar.
Frá Seyðisfirði í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mælingar á speglum í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar sýna að enn er hæg hreyfing á hryggnum milli stóra skriðusársins frá í desember 2020 og Búðarár.

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef almannavarna. Tilkynningin er ekki send innlendum fjölmiðlum, heldur deilt á samfélagsmiðlinum Facebook.

Er þar tekið fram að fulltrúar Veðurstofu, almannavarna og Múlaþings hafi haldið fund í dag vegna áframhaldandi skriðuhættu á Seyðisfirði.

„Hryggurinn er talsvert sprunginn og mælar sýna að bútar hans færast ekki allir í sömu átt. Því er talið líklegt að hann fari niður í pörtum en ekki allur í einu. Óvíst er hvenær það gerist,“ segir í tilkynningunni.

Hvattir til varkárni

Vegna þessa séu íbúar sem fyrr hvattir til varkárni á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum.

„Þá eru allir þeir sem leið eiga um Hafnargötu við Búðará og utan við Múla beðnir um að sýna varkárni einnig.“

Bent er á að vel sé fylgst með mælum í hlíðum ofan Seyðisfjarðar og viðeigandi ráðstafanir gerðar þyki ástæða til.

Enn er í gildi óvissustig almannavarna á Seyðisfirði og minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Á vef Veðurstofu Íslands er tilkynningarborði um Seyðisfjörð þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um vöktun og fleira, skoða staðsetningu svæðisins er um ræðir og hreyfingar á speglum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert