Alba Berlín vann sinn þrettánda sigur í röð í þýsku A-deildinni í körfubolta í kvöld er liðið vann sannfærandi sigur á Rostock á heimavelli, 91:74.
Martin Hermannsson átti góðan leik fyrir Alba, skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar á 24 mínútum.
Alba hefur leikið afar vel í deildinni eftir að Martin kom aftur til félagsins frá Valencia á Spáni. Er liðið í öðru sæti með 23 sigra og fimm töp, eins og topplið Bayern München.