Memphis nefnir eigendur Man United í nýju rapplagi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. desember 2020 16:01 Memphis í leik gegn Póllandi í síðustu umferð Þjóðadeildarinnar. Laurens Lindhout/Getty Images Hollenski landsliðsmaðurinn Memphis Depay, fyrrum leikmaður Manchester United, nefnir Glazer-fjölskylduna, eigendur félagsins, í rapplagi á plötu er hann gaf út nýverið.
Hollenski landsliðsmaðurinn Memphis Depay lætur það ekki duga að vera einn af máttarstólpum Lyon í frönsku úrvalsdeildinni sem og hollenska landsliðinu. Hann er einnig tónlistarmaður og gaf út plötuna Heavy Stepper á þessu ári. Hinn 26 ára gamli Memphis nefnir Glazer fjölskylduna í laginu Big Fish eða einfaldlega ´Stór Fiskur´ á okkar ástkæra ylhýra. Fjölskyldan hefur verið mikið gagnrýnd af stuðningsfólki Man United sem og fyrrum leikmönnum,fyrir að hugsa ekki um annað en að fylla eigin vasa. Memphis lék með félaginu frá 2015 til 2017. Var honum spáð frægð og frama en náði aldrei almennilegri fótfestu í enska boltanum. Big Fish, sem er með 22 þúsund spilanir á Spotify, er voða hefðbundið rapplag. Snýst um kvenmenn, peninga og Glazer-fjölskylduna. „Ég er að undirbúa nokkrar yfirlýsingar, ég þarf pening eins og Glazer-fjölskyldan,“ segir í lauslegri þýðingu á texta lagsins. Áhugasamir geta fundiðlagið á Youtube sem og á Spotify þar sem platan er í heild sinni. Memphis hefur átt góðu gengi að fagna með Lyon frá því hann gekk í raðir félagsins haustið 2017. Hann sleit liðbönd í hné í lok síðasta árs en er aftur kominn á fullt og virðist sem Ronald Koeman – landi hans og þjálfari Barcelona – vilji ólmur fá hann í raðir spænska stórveldisins. Þá hefur Memphis leikið 59 leiki fyrir A-landslið Hollands og skorað í þeim 21 mark.
Fótbolti Enski boltinn Franski boltinn Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Sjá meira