Ekki til umræðu að loka á flug frá tilteknum löndum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. október 2020 20:27 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Vísir/Vilhelm
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir það ekki hafa komið til umræðu að stoppa flug frá tilteknum löndum. Þriðji stóri hópurinn sem var á leið til landsins frá Póllandi í gær greindist smitaður við landamæraskimun á dögunum. „Við erum með það sem sóttvarnalæknir lagði til að væru öruggustu aðgerðirnar á landamærunum, þessi tvöfalda skimun. Hún hefur heldur betur sýnt sig og ég held að það sé engin ástæða til að breyta því þegar faraldurinn er í mikilli uppsveiflu víða í Evrópu,“ sagði Víðir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna hefur leikið lykilhlutverk“ Hann segir mjög jákvætt að faraldurinn sé í rénun hér á landi. „Við sjáum árangur erfiðisins, við sjáum að kúrfan er undan að láta og okkur er að takast að beygja hana og við erum með faraldurinn á niðurleið,“ sagði Víðir. Hann segir einnig mjög jákvætt að sjá að færri hafi þurft að leggjast inn á gjörgæslu í þessari bylgju faraldursins en í vor. Það sé að miklu leiti uppsafnaðri þekkingu að þakka. „Svo er annað jákvætt sem við erum að sjá að það hafa færri þurft að leggjast inn á gjörgæslu og færri veikst alvarlega og það er auðvitað öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna sem hefur leikið lykilhlutverk í því. Við erum að læra miklu meira á veiruna, það er ekkert sem bendir til þess að hún sé veikari eða eitthvað slíkt en fyrr, það er bara að þekkingin hefur aukist og við vitum betur hvernig á að bregðast við þegar fólk fer að sýna ákveðin einkenni.“ Þakkar fyrir hvern dag þar sem smitum fækkar Hann segist vongóður að þessi þriðja bylgja faraldursins sé í rénun en segir að það muni taka lengri tíma að sjá hvort hertar sóttvarnaaðgerðir beri þann árangur sem vonast er eftir. „Maður þakkar fyrir hvern dag þar sem við sjáum að smitum sé að fækka og þetta stóra hlutfall þeirra sem eru í sóttkví þegar þeir greinast að það haldi áfram að ver þannig. Að þetta sé smám saman að síga niður,“ sagði Víðir. „Það mun taka einhvern tíma að huga að því að slaka á aðgerðum. Það er ekki að gerast á allra næstu dögum þannig að við þurfum að halda áfram,“ sagði Víðir. Þá skipti miklu máli að fólk þrauki og hafi seiglu í að standa af sér það sem eftir er af þessari þriðju bylgju. Það sé mikilvægt að fólk ræði það við sína nánustu að það sé þreytt á ástandinu og líði kannski ekki vel.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fréttir af flugi Heilbrigðismál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir „Eitthvað sem er ekki mér að kenna“ Þunguð kona á ekki rétt á veikindagreiðslum úr fæðingarorlofssjóði þar sem of langur tími er liðinn frá því hún var á vinnumarkaði. 22. október 2020 19:13 „Fólk er að hugsa um heilsuna í ræktinni og er ekki að fara í sleik á einhverjum karaoke bar“ Einkaþjálfarinn Egill Einarsson ræddi við þáttastjórnendur Brennslunnar í morgun og var farið yfir ástandið í líkamsræktarstöðvum landsins vegna kórónuveirunnar. 22. október 2020 15:31 Þriðji stóri hópurinn frá Póllandi greindist með veiruna Sautján manns sem komu frá Póllandi greindust með kórónuveiruna í landamæraskimun í gær. Fjórir þeirra eru með virk smit en mótefnamælingar er beðið í þrettán tilfellum. 22. október 2020 12:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Fleiri fréttir Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Helga Þórisdóttir og Eiríkur Ingi Jóhannsson mæta í Pallborðið Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Sjá meira
„Eitthvað sem er ekki mér að kenna“ Þunguð kona á ekki rétt á veikindagreiðslum úr fæðingarorlofssjóði þar sem of langur tími er liðinn frá því hún var á vinnumarkaði. 22. október 2020 19:13
„Fólk er að hugsa um heilsuna í ræktinni og er ekki að fara í sleik á einhverjum karaoke bar“ Einkaþjálfarinn Egill Einarsson ræddi við þáttastjórnendur Brennslunnar í morgun og var farið yfir ástandið í líkamsræktarstöðvum landsins vegna kórónuveirunnar. 22. október 2020 15:31
Þriðji stóri hópurinn frá Póllandi greindist með veiruna Sautján manns sem komu frá Póllandi greindust með kórónuveiruna í landamæraskimun í gær. Fjórir þeirra eru með virk smit en mótefnamælingar er beðið í þrettán tilfellum. 22. október 2020 12:06