Eiður Smári Guðjohnsen er í dag þjálfari FH og sá sína menn gera jafntefli við Stjörnuna í Bestu deildinni í kvöld.
Eins og flestir vita var Eiður frábær knattspyrnumaður á sínum tíma og af mörgum talinn okkar besti frá upphafi.
Eiður spilaði með stórliðum á borð við Chelsea og Barcelona en skórnir eru nú farnir upp í hillu.
Eiður hefur engu gleymt miðað við myndband sem birtist á Twitter í kvöld en Hilmar Jökull birti það.
Þar má sjá Eið taka frábærlega á móti boltanum í miðjum leik í dag er hann endaði við hliðarlínuna.
Magnaðir taktar eins og má sjá hér.
Geitin að leika listir á hliðarlínunni 🐐 pic.twitter.com/IIKZRjmHgD
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) July 4, 2022