Innlent

„Hvað voru skipu­leggj­endur að hugsa?“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Tómas Guðbjartsson telur óráðlegt að fara hratt í afléttingar á sóttvarnatakmörkunum.
Tómas Guðbjartsson telur óráðlegt að fara hratt í afléttingar á sóttvarnatakmörkunum. Vísir

Tómas Guðbjartsson læknir segir alls ekki skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði. Hann skýtur á ráðherra og segir að sjá megi leifturhraða útbreiðslu nýs afbrigðis kórónuveirunnar á Evrópumótinu í handbolta.

Tómas sendi inn skoðanagrein á Vísi fyrr í dag sem ber heitið: „Pönkast á nauðsynlegum sóttvörnum.“ Í greininni skýtur hann bæði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum hæstaréttardómara og lögmann. 

Tómas og Jón Steinar tókust á í viðtali á Bylgjunni fyrr í vikunni og sá síðarnefndi kallaði núgildandi sóttvarnatakmarkanir „móðursýki“ og „sósíalisma,“ að því er fram kemur í grein Tómasar.

„Skiljanlega leggja margir við hlustir og sumum eflast fundist tillögur þessa fólks skynsamlegar [...] Þetta þýðir þó alls ekki að það sé skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði - og reyndar full ástæða til að ganga hægt um gleðinnar dyr,“ segir Tómas.

Landspítali geti ekki kallað inn varaþingmenn

Hann tekur Evrópumótið í handbolta sem dæmi og segir að skipuleggjendur hefðu átt að viðhafa miklu betri sóttvarnir. Eins og greint hefur verið frá hafa nú sex liðsmenn íslenska landsliðsins í handbolta smitast af kórónuveirunni.

„Omicron er þegar búin að eyðileggja Evrópumótið og sífellt fleiri kalla eftir því að þessu hópsmitamóti verði hætt [...] Nú eru 20.000 manns að kjassast í fullum íþróttahöllum og leikmenn knúsa hver annan eftir hvert mark,“ segir Tómas meðal annars í greininni.

Læknirinn virðist ekkert botna í meintu skeytingarleysi mótshaldara og segir að Covid-sýkingar geti í verstu tilfellum reynst banvænar. Þá sérstaklega ef slík sýking ratar inn á Landspítala enda séu sjúklingar oftast veikir fyrir.

 „Hvað voru skipuleggjendur að hugsa? Sömu spurningu má spyrja ofangreindan ráðherra, þingmann og fyrrverandi hæstaréttardómara. Ef þau fengju að ræða gætu hæglega komið upp hópsýkingar sem leggja starfsemi Landspítalans á hliðina á nokkrum dögum.“

„Þetta er augljósa ástæðan fyrir því að sóttvarnalæknir vill nú aflétta sóttvörnum hægt og rólega. Enda getum við á Landspítala ekki kallað inn varaþingmenn líkt og gert var við nýlegar hópsýkingar á Alþingi,“ segir Tómas Guðbjartsson læknir.


Tengdar fréttir

Pönkast á nauð­syn­legum sótt­vörnum

Undanfarna daga hafa ýmsir stigið fram og heimtað að sóttvörnum vegna COVID sé aflétt strax. Í þeim hópi er fyrrverandi dómsmálaráðherra, en þegar hún gegndi því embætti var hún yfirmaður Almannavarna og um leið sóttvarnalæknis.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×