Danir settu markamet gegn lærisveinum Dags Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 14:00 Dagur Sigurðsson hafði fá svör á hliðarlínunni eftir afleita byrjun Japans í dag. Dean Mouhtaropoulos/Getty Images Heimamenn í Japan, undir stjórn Dags Sigurðssonar, biðu afhroð í fyrsta leik sínum í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Danmörk vann 47-30 sigur á þeim japönsku.
Dagur Sigurðsson mætti með sína menn til leiks á Ólympíuleikana í dag, en á síðustu leikum árið 2016 í Ríó de Janeiró, hlaut hann brons sem þjálfari Þjóðverja. Dagur var sérstaklega ráðinn af japanska handknattleikssambandinu árið 2017 til að byggja upp samkeppnishæft lið fyrir Ólympíuleika þeirra japönsku á heimavelli. Fyrsta verkefnið var ærið. Ríkjandi heims- og Ólympíumeistarar Dana biðu Japana. Einhverjar taugar virðast hafa verið á meðal japönsku leikmannana þar sem þeir mættu varla til leiks. Danir nýttu sér það til fulls og sá Dagur ástæðu til að taka leikhlé eftir aðeins fimm mínútna leik þegar Danir höfðu skorað fyrstu fimm mörk leiksins. Ekki skánaði það fyrir þá japönsku eftir það. Danir náðu mest 13 marka forskoti í fyrri hálfleiknum, 19-6, en munurinn í hléi var ellefu mörk þar sem Danir skoruðu heil 25 mörk í fyrri hálfleik, gegn 14 mörkum Japans. Japan skoraði tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks til að minnka muninn í níu mörk en komust ekki nær en það. Varnarleikur þeirra japönsku batnaði ekki sem skildi eftir hléið, þó sóknarleikurinn væri beittari, og lauk leiknum með ótrúlegum lokatölum, 47-30 fyrir Dani. Aldrei hafa eins mörg mörk verið skoruð af einu liði í leik á Ólympíuleikunum. Fyrra meti deildu Frakkar sem unnu Breta 44-15 í Lundúnum 2012 og Svíar sem unnu Ástrali 44-23 í Sydney 2000. Jacob Holm var markahæstur Dana með níu mörk en línumaðurinn Magnus Saugstrup skoraði átta. Hjá Japan var hægri hornamaðurinn Hiroki Motoki markahæstur með átta mörk. Allir leikmenn Dana, að undanskildum markverðinum Niklas Landin og miðjumanninum Morten Olsen, komust á blað. Most goals by a team in a single match all-time at an Olympics before today: France 44-15 Great Britain (Olympics 2012) and Sweden 44-23 Australia (Olympics 2000)The new record: Denmark 47(!)-30 Japan#handball— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) July 24, 2021 Danmörk er þá á toppi B-riðils eftir eina umferð. Egyptaland kemur þar á eftir í kjölfar 37-31 sigurs á Portúgal og Svíþjóð vann þá nauman eins marks sigur á strákum Arons Kristjánssonar í Barein. Danir mæta Egyptum í næsta leik á mánudag en Japan mætir Svíþjóð.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Handbolti Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Sjá meira