Grindavík lagði deildarmeistaranna og Valur burstaði Fjölni Smári Jökull Jónsson skrifar 22. mars 2023 21:01 Amanda Okodugha átti góðan leik fyrir Grindavík í kvöld. Vísir/Vilhelm Grindavík vann góðan sigur á nágrönnum sínum úr Keflavík þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Þá vann Valur stóran sigur gegn Fjölni.
Keflavík tryggði sér á dögunum deildarmeistaratitilinn í körfubolta en liðið var, fyrir leikinn í kvöld, í efsta sæti Subway-deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Val þegar tvær umferðir voru eftir. Grindavík var hins vegar í hinu afar óeftirsóknarverða fimmta sæti án þess að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Karina Konstantinova skoraði tíu stig fyrir Keflavík í kvöld.Vísir/Hulda Margrét Það var ekki mikið skorað í HS-Orku höllinni í kvöld. Jafnt var 15-15 eftir fyrsta leikhluta en heimakonur í Grindavík voru sterkari í öðrum leikhluta og leiddu 30-24 eftir fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik hélt Grindavík frumkvæðinu. Þær leiddu 47-36 fyrir fjórða leikhluta og gestirnir úr Keflavík líklega ekki skorað svona lítið í langan tíma. Þær bitu hins vegar aðeins frá sér í fjórða leikhluta. Þær minnkuðu muninn mest niður í þrjú stig en komust ekki lengra en það. Grindavík var sterkara undir lokin og tryggði sér 63-57 sigur. Elma Dautovic skoraði 13 stig fyrir Grindavík í kvöld auk þess að taka 13 fráköst og þá skoraði Amanda Okudugha 12 stig og tók 16 fráköst. Hjá Keflavík varn Daniella Wallen langatkvæðamest með 15 stig og 10 fráköst. Kiana Johnson var frábær hjá Val í kvöld eins og svo oft áður.Vísir/Bára Í Grafarvogi tóku Fjölniskonur á móti Val. Tímabil Fjölnis hefur verið erfitt en liðið hefur þó verið að spila vel að undanförnu eftir að Brittany Dinkins gekk til liðs við félagið. Í kvöld mætti Fjölnir hins vegar ofjarli sínum. Valskonur tóku frumkvæðið strax í byrjun og leiddu 51-31 í hálfleik. Í síðari hálfleik varð munurinn mest fjörtíu stig og Valskonur fögnuðu að lokum 102-71 sigri. Kiana Johnson og Simone Costa voru stigahæstur hjá Val með 23 stig en áðurnefnd Brittany Dinkins var stigahæst hjá Fjölni með 22 stig. Valur lyftir sér í annað sæti deildarinnar með sigrinum en Haukar geta náð því á nýjan leik með sigri á Njarðvík í kvöld.
Subway-deild kvenna UMF Grindavík Keflavík ÍF Valur Fjölnir Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers Körfubolti Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers Deandre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira