Innlent

Reykja­víkur­borg telur kristin­fræði­frum­varp ekki til að auka víð­sýni og efla mann­skilning

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Frumvarpið er lagt fram af þingflokki Miðflokksins og tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokks.
Frumvarpið er lagt fram af þingflokki Miðflokksins og tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokks.

Reykjavíkurborg er „alfarið á móti þeirri nálgun að heiti námsgreinarinnar trúarbragðafræði verði breytt í kristinfræði og trúarbragðafræði og telur þá aðferð ekki til þess fallna að styðja við víðsýni og efla mannskilning.“

Þetta kemur fram í umsögn borgarinnar um frumvarp Miðflokksins um að efla stöðu kristinfræði í kennslu um trúarbragðafræði í grunnskólum. 

Meðflutningsmenn utan þingmanna Miðflokksins eru tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson og Ásmundur Friðriksson.

Í greinargerð með frumvarpinu segir meðal annars að æska landsins eigi rétt á að fá að kynnast þeim trúarbrögðum sem mótuðu það samfélag sem við búum í. 

„Saga landsins og kristni er að mörgu leyti samofin, þess vegna á kristinfræðin að njóta sérstöðu innan veggja grunnskólanna. Eðlilegt er að hún sé því í forgrunni í kennslu trúarbragða og vegna tengsla trúarinnar við sögu Íslands og menningu. Tengslin eru menningarleg, söguleg og félagsleg. Okkur ber að kynna áhrifin sem kristnin hefur haft á samfélag okkar. Eðlilegt er því að fræða sérstaklega um ríkjandi trú landsins. Það gerir nemendur læsa á íslenska og vestræna menningu og menningararf.“

Námið þurfi að þjóna fjölmenningarlegu samfélagi

Í greinargerðinni er lögð áhersla á að markmiðið með fræðslu í kristnum fræðum sé ekki trúarleg boðun. Skólinn sé ekki trúboðsstofnun og því eigi kennslan ekki að stangast á við trúfrelsi.

Lögmaður Reykjavíkurborgar segir hins vegar í umsögn að með því að leggja áherslu á fræðslu um kristna trú umfram aðra sé óbeint verið að senda nemendum og kennurum þau skilaboð að kristni sé mikilvægari eða betri en önnur trúarbrögð eða lífsskoðanir.

„Í frumvarpi þessu felst því gífurleg mótsögn, enda fráleitt að halda því fram að nemendur öðlist aukið umburðarlyndi og virðingu fyrir öðrum með „sérstakri fræðslu um ríkjandi trú landsins, kristni“, umfram önnur trúarbrögð eða lífsskoðanir,“ segir í umsögninni.

„Reykjavíkurborg telur mikilvægt að kennsla um trúarbrögð fari fram á hlutlausan hátt og að námsgreinin taki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í samfélaginu. Námið þarf að þjóna fjölmenningarlegu samfélagi og kenna nemendum að bera virðingu fyrir fólki óháð trú, trúleysi eða öðrum skoðunum. Markmið kennslunnar þarf að vera að auka skilning nemenda á ólíkum hefðum og lífsgildum og hvetja til fordómalausra umræðna sem einkennast af umburðarlyndi og virðingu. Þessum markmiðum verður aðeins náð með kennslu sem tekur jafnt tillit til ólíkra trúarbragða og trúleysis.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×