Hamar/Þór semur við bandarískan leikmann

Jenna Mastellone er á leiðinni til Hamars/Þórs.
Jenna Mastellone er á leiðinni til Hamars/Þórs. Sfuathletics.com

Sameiginlegt körfuknattleiksfélag Hamars og Þórs hefur samið við Jenna Mastellone um að spila með félaginu á komandi tímabili í fyrstu deild kvenna. 

Mastellone er fjölhæfur bakvörður sem kemur til Hamars/Þórs frá St. Francis háskólanum í Bandaríkjunum, þar sem hún var með að meðaltali 10 stig í leik á lokaári sínu. 

Félagið segir í tilkynningu: 

Jenna Mastellone er leikmaður sem mun án efa koma til með að styrkja liðið okkar á næsta tímabili. Við bjóðum Mastellone velkomna í Hamar/Þór og hlökkum til að fá hana til okkar í haust.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert