45 ár frá því að konur lögðu fyrst niður störf Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. október 2020 12:48 Frá kvennafrídeginum 2018, þegar konur lögðu niður störf klukkan 14:38, og komu saman í miðborginni. Fimm baráttufundir hafa verið haldnir frá 1975. Foto: Kvennafrídagurinn 2018/Vilhelm
Fjörutíu og fimm ár eru síðan konur á Íslandi lögðu fyrst niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns. Kvennafrídagurinn í dag verður með breyttu sniði en þess er krafist að aðgerðir stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum fari í jafnréttismat svo þær gagnist öllum kynjum jafnt. Þann 24. október 1975 lögðu konur á Íslandi niður störf og komu saman á Lækjartorgi á einum fjölmennasta útifundi Íslandssögunnar. Síðan þá hafa fimm baráttufundir verið haldnir; árið 1985, 2005, 2010, 2016 og 2018. Eðli máls samkvæmt munu konur ekki koma saman í dag en Kvenréttindafélag Íslands beinir sjónum sínum að áhrifum kórónuveirufaraldursins og þá sérstaklega gagnvart fólki í framlínu. „Þetta eru til dæmis heilbrigðis- og umönnunarstörf, þrif og kennsla. Öll þessi störf hafa verið skilgreind sem lykilstörf í samfélaginu á tímum Covid. Þetta er vissulega viðurkenning á mikilvægi þessara starfa en þessari viðurkenningu virðist ekki fylgja viðleitni til að leysa undirmönnun og undirfjármögnun hjá þeim og margar af þessum stéttum hafa staðið í kjarabaráttu í ár eins og áður,“ segir Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands. Þá megi verði jafnréttissjónarmið ávallt að vera í hávegum höfð – líka í heimsfaraldri. „Við viljum beina athyglinni á þá staðreynd að heimsfaraldur eins og Covid hefur mismunandi áhrif á kyn. Og við höfum séð að það ýtir undir kynjamisrétti og annað ójafnrétti í samfélaginu. Við teljum að það sé mjög mikilvægt að missa ekki sjónar af jafnréttissjónarmiðum þegar verið er að byggja upp samfélagið á ný eftir faraldurinn.“ Haldinn verður netviðburður í beinni útsendingu í tilefni dagsins, en fylgjast má með honum klukkan 13 á Facebook-síðu Kvenréttindafélags Íslands.
Jafnréttismál Vinnumarkaður Tímamót Tengdar fréttir Atvinnutekjur kvenna 1,8 milljónum krónum lægri en karla árið 2019 Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands segir það mikið áhyggjuefni að meðallaun kvenna séu mun lægri en meðallaun karla enn þann dag í dag. Í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands kemur fram að munur á atvinnutekjum allra kvenna og karla árið 2019 voru 1,8 milljónir króna. 12. júlí 2020 15:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Sjá meira
Atvinnutekjur kvenna 1,8 milljónum krónum lægri en karla árið 2019 Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands segir það mikið áhyggjuefni að meðallaun kvenna séu mun lægri en meðallaun karla enn þann dag í dag. Í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands kemur fram að munur á atvinnutekjum allra kvenna og karla árið 2019 voru 1,8 milljónir króna. 12. júlí 2020 15:06