Kaupa Útilíf af Högum Atli Ísleifsson skrifar 9. apríl 2021 08:37 Útilíf var stofnað árið 1974 og starfa þar um fjörutíu manns. Aðsend Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson hafa í sameiningu keypt Útilíf af Högum. Eftir kaupin er Íslensk fjárfesting 60 prósent hluthafi en J.S. Gunnarsson heldur á 40 prósent hlut í félaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem eftir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ekkert kemur fram um kaupverð. Hörður Magnússon hefur verið framkvæmdastjóri Útilífs undanfarin ár og hann mun halda áfram starfinu áfram. Haft er eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga, að með sölunni á Útilíf sé félagið að einfalda reksturinn og einbeita sér í ríkari mæli að skilgreindri kjarnastarfsemi, á dagvöru- og eldsneytismarkaði. „Við óskum nýjum eigendum til hamingju með kaupin og velfarnaðar í rekstri Útilífs. Einnig þökkum við starfsfólki Útilífs fyrir frábært samstarf á liðnum árum og óskum þeim góðs gengis í nýrri sókn,“ segir Finnur. Haft er eftir Herði að hann sé spenntur fyrir næsta kafla í sögu Útilífs: „Smásölumarkaðurinn er á fleygiferð um þessar mundir. Það eru í gangi miklar breytingar á lífsstíl og áhugamálum þjóðarinnar og síauknar kröfur eru gerðar um vandaða vöru og rétta persónulega þjónustu á sama tíma og hinn stafræni heimur er að bylta samskiptum við viðskiptavinina. Framtíðin hefur aldrei verið jafn spennandi og full af tækifærum. Stjórnendur og nýir eigendur hafa metnað og vilja til að grípa þessi tækifæri tveim höndum,” segir Hörður. Einar Þór Steindórsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Íslenskri fjárfestingu, segir að markmið nýrra eigenda sé að byggja á góðum grunni Útilífs sem útivistar- og íþróttaverslun en á sama tíma leggja áherslu á sókn í útivistarvörum bæði í verslunum Útilífs og í gegnum vefverslun. Starfsmenn um fjörutíu Íslensk fjárfesting er fjárfestingarfélag í eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar. Fjárfestingar félagsins hafa einkum verið á sviði ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og fasteignaþróunar. J.S. Gunnarsson er innflutningsfyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á útivistar-, sport- og skófatnaði og er í eigu Heiðu Gunnarsdóttur, Jóhanns Inga Gunnarssonar og Steindórs Gunnarssonar. Útilíf var stofnað árið 1974 og starfa þar um fjörutíu manns, Útilíf rekur tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu, í Kringlunni og í Smáralind auk vefverslunar.
Markaðir Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Sjá meira