„Hef kostað samfélagið í kringum tvö hundruð milljónir“ Stefán Árni Pálsson skrifar 27. október 2020 11:31 Guðmundur hefur í nokkur ár verið formaður Afstöðu.
Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu sat í fangelsi í sextán ár fyrir fíkniefnasmygl, bæði hér á Íslandi og í Danmörku. Í dag er hann frjáls maður og einbeitir sér að málum fanga hér á landi. Hann gagnrýnir fangelsismál á Íslandi og líkir fangelsum við geymslu, þar sé eitruð menning og erfitt fyrir einstaklinga sem sitja þar inni að koma betrumbættir út í samfélagið á ný. Hann segir það kosta samfélagið margfalt meira að fá sömu einstaklingana út í samfélagið án þess að þeir hafi fengið viðeigandi aðstoð. Eva Laufey Kjaran ræddi við Guðmund Inga nú á dögunum og fékk að heyra hans sögu og hvernig leiddist út á þessa braut. „Ég fer í rauninni út í það harða neyslu að ég tapa öllu sem ég átti. Maður þarf að viðhalda ákveðnum lífsstandard og því lá það beinast við að fara í innflutning,“ segir Guðmundur. „Maður hugsar aldrei um þann hluta að lenda í fangelsi, maður er bara í neyslu og þarf að viðhalda henni. Það er rangt að harðir dómar hafi forvarnargildi.“ Verða ítrekað fyrir áfalli Guðmundur segist aldrei hafa hitt neinn í fangelsi sem vilji ekki breyta og snúa lífi sínu við en stuðninginn vantar sárlega. Guðmundur endaði í fangelsi rétt fyrir aldamótin. „Flestir sem eru að fara í fangelsi hafa orðið fyrir einhvers konar áfalli í æsku eða einhverskonar röskun eða félagslegum vanda. Þegar þú kemur í fangelsi er síðan annað áfall sem gerist þar sem þarf síðan að vinna úr seinna. Svo þegar þú færð þungan dóm þá kemur enn eitt áfallið. Ég vissi í bæði skiptin að ég fengi þungan dóm en það er samt áfall.“ Hann segir að þrátt fyrir að það vanti mikið í kerfið á Íslandi séu jákvæðir punktar og þá helst þrepaskiptingin sem gerir föngum kleift að afplána hluta af fangelsisdómi sínum fyrir utan fangelsi en það vanti ákveðna endurhæfingu þegar fangar afplána. „Það er ekkert í boði. Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Við ætlum að hjálpa þér að verða það. Það var bara ekkert þannig og nám í fangelsum er að mjög skornum skammti. Það er mikil neysla inn í fangelsunum og þú sogast inn í mjög svartan húmor og eitraða menningu. Það er misskilningur að setja fólk í geymslu í x tíma að hann lagist bara við það. Að hann verði betri eftir þann tíma, þvert á móti þá verður hann verri.“ Hann segir að það sé mikill sparnaður í því að reyna eftir bestu getu að betrumbæta fangana inn í fangelsunum. „Ég reiknaði það einhver tímann að ég sjálfur hef kostað samfélagið í kringum tvö hundruð milljónir. Segjum að við tækum tíu prósent af þessari upphæð og myndum vinna markvisst með manneskjunni frá byrjun og veita henni þá menntun sem hún þarf. Þá eru menn að koma út með eitthvað í farteskinu og koma út með menntun og starfsþjálfun og geta farið strax að vinna,“ segir Guðmundur sem stefnir sjálfur á það að fara út í stjórnmál og bæta réttindi fanga. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Fangelsismál Ísland í dag Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Sjá meira