Innlent

Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Flestir í ferðinni útskrifuðust frá Flensborg í vor.
Flestir í ferðinni útskrifuðust frá Flensborg í vor. Vísir/Vilhelm

Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld.

Erla Sig­ríður Ragn­ars­dótt­ir, skóla­meist­ari Flens­borg­ar­skól­ans, segir í samtali við Vísi að ferðin hafi hvorki verið á vegum skólans né nemendafélags. Óneitanlega sé um að ræða leiðinlegar fregnir nú undir lok sumars. DV greindi fyrst frá málinu en flestir í ferðinni útskrifuðust frá skólanum í vor.

Hópurinn kom til Íslands með erlendu leiguflugi auk annarra farþega. Samkvæmt heimildum Vísis var ekki búið að senda alla farþega vélarinnar í sóttkví fyrr í dag og hefur það leitt til mikillar óvissu meðal farþega. Að sögn almannavarna er þó öllum um borð gert að fara í sóttkví og eiga nú allir að vera búnir að fá sent boð þess efnis.

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, hvetur farþega sem eru efins um stöðu sína til að nýta sér netspjallið á Covid.is.

Stilltir og flottir krakkar

Erla segist hafa komið batakveðjum á ferðalangana og beðið þá um að fara varlega. Hún hefur fulla trú á því að stúdentarnir hafi fylgt helstu tilmælum þar sem þeir þekki þessar reglur 

„Þau eru hlýðin og við erum nú vön ýmsu í framhaldsskólanum. Þau kunna allar þessar reglur, hafa staðið sig ofboðslega vel og fengu ítrekað hrós í vetur. Þetta eru stilltir og flottir krakkar en auðvitað er líf og fjör þegar maður er nítján eða tvítugur og fer í sína fyrstu ferð saman,“ segir Erla.

Fréttin var uppfærð klukkan 18:35 með upplýsingum frá almannavörnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×