10,4 prósenta atvinnuleysi í apríl

Almennt atvinnuleysi heldur áfram að lækka á milli mánaða eftir að hafa náð hámarki í janúar. Enn eru þó rúmlega 20 þúsund manns atvinnulausir og 4 þúsund manns í minnkuðu starfshlutfalli.

Atvinnulausum í ferðaþjónustunni hefur fækkað hratt.
Atvinnulausum í ferðaþjónustunni hefur fækkað hratt.
Auglýsing

Atvinnu­leysið mæld­ist 10,4 pró­sent í apríl og hefur minnkað um rúmt pró­sentu­stig frá árs­byrj­un. Af þeim voru tæp­lega 6.500 manns búin að vera atvinnu­laus í 12 mán­uði, sem er tæp­lega þrefalt meira en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýút­gef­inni mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­un­ar.

Mesta fækk­unin í ferða­þjón­ustu

Sam­kvæmt skýrsl­unni hefur atvinnu­lausum fækkað í öllum atvinnu­grein­um, miðað við mán­uð­inn á und­an. Mest var þó fækk­unin í ferða­tengdri starf­semi eins og gisti- og veit­inga­þjón­ustu og far­þega­flutn­ing­um. Einnig hafði atvinnu­lausum fækkað í sjáv­ar­út­vegi og upp­lýs­inga­tækni.

Alls komu tæp­lega tvö þús­und ný störf sem aug­lýst voru í vinnu­miðlun hjá stofn­un­inni í apr­íl. Einnig gaf hún út 176 atvinnu­leyfi til útlend­inga til starfa hér á landi, en þar af voru 115 ein­stak­lingar sem voru nýir á íslenskum vinnu­mark­aði.

Auglýsing

Líkt og áður mælist atvinnu­leysið mest á Suð­ur­nesjum, en þar nemur það 21,6 pró­sent­um. Þó hefur það einnig minnkað þar mest milli mán­aða, en skráð atvinnu­leysi mæld­ist í 24,5 pró­sentum í lands­hlut­anum í jan­ú­ar. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist atvinnu­leysið það sama og á land­inu öllu, 10,4 pró­sent.

Heild­ar­at­vinnu­leysi karla er nú 11,4 pró­sent, en 11,6 pró­sent meðal kvenna. Á Suð­ur­nesjum er atvinnu­leysið mun meira meðal kvenna en karla, eða 26,4 pró­sent hjá konum og 20,7 pró­sent hjá körl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent