Frá Akureyri í Hafnarfjörðinn

Sandra Nabweteme er komin til FH.
Sandra Nabweteme er komin til FH. mbl.is/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Sandra Nabweteme hefur verið lánuð frá Þór/KA til FH. Félagaskiptin voru staðfest á heimasíðu KSÍ í dag.

Nabweteme lék sjö deildarleiki með Þór/KA í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk, þar af tvö í dramatískum 2:1-sigri liðsins á útivelli gegn Tindastóli.

Nabweteme er landsliðskona Úganda. Þá lék hún í háskólaboltanum í Bandaríkjunum áður en hún kom til Þórs/KA. FH er í öðru sæti 1. deildarinnar með 20 stig, fimm stigum á eftir toppliði KR, og í mikilli baráttu um að fara upp í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert