KA Íslandsmeistari þriðja árið í röð

KA fagnar Íslandsmeistaratitlinum í dag.
KA fagnar Íslandsmeistaratitlinum í dag. mbl.is/Eyþór

KA er Íslandsmeistari kvenna í blaki þriðja árið í röð eftir 3:2 útisigur á Aftureldingu í dag og samtals 3:1 sigur í einvíginu.

Afturelding byrjaði af krafti og hafði betur í fyrstu tveimur hrinunum sem fóru, 27:25 eftir upphækkun og 25:15.

Gestirnir komu sterkir til baka í næstu hrinum og jöfnuðu metin í 2:2 en hrinur þrjú og fjögur fóru, 27:25 eftir upphækkun og 25:22 fyrir gestunum.

KA endaði leikinn af krafti í oddahrinunni sem fór 15:8 og Íslandsmeistaratitilinn í höfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert