Bandaríkin og Kina vinna saman í loftslagsmálum Samúel Karl Ólason skrifar 18. apríl 2021 09:45 John Kerry, sérstakur erindreki Bandaríkjanna varðandi loftslagsmál. AP/Sendiráð Bandaríkjanna í Suður-Kóreu Ráðamenn í Kína og Bandaríkjunum segjast hafa komið að samkomulagi um að takast á við veðurfarsbreytingar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ríkin eru efst á lista ríkja sem losa hvað mestan koltvísýring út í andrúmsloftið.
John Kerry, sérstakur erindreki Bandaríkjanna varðandi veðurfarsbreytingar hefur fundað stíft með Xie Zhenhua, erindreka Kína, í Sjanghaí undanfarna viku, í aðdraganda fjarráðstefnu Hvíta hússins um loftslagsmál sem haldin verður í næstu viku. Niðurstaða funda Kerry og Xie er að Bandaríkin og Kína stefna að því að tækla veðurfarsbreytingar í sameiningu og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að báðir aðilar telji nauðsynlegt að takast á við vandamálið af þeim alvarleika og ákafa sem það krefst. AP fréttaveitan hefur eftir Kerry, sem ræddi við blaðamenn í Suður-Kóreu í morgun, að yfirlýsing hans og Xie sé stóryrt, enda sé tilefni til. Hann hafi hins vegar fyrir löngu síðan lært að leggja meiri áherslu á gjörðir en orð. Hér má sjá viðtal Sky News við Kerry frá því í morgun. Kína losar mestan koltvísýring út í andrúmsloftið en Bandaríkin fylgja þeim fast á hæla. Samkvæmt AP fréttaveitunni losa ríkin tvö um helming þeirra gróðurhúsalofttegunda sem eru að hita andrúmsloft jarðarinnar. Samstarf ríkjanna á þessu sviði þykir gífurlega mikilvægt fyrir baráttuna gegn veðurfarsbreytingum en samband þeirra hefur beðið töluverða hnekki á undanförnum árum sem rekja má meðal annars til tilkalls Kínverja til Taívans og Suður-Kínahafs, viðskiptadeilna og mannréttindabrota. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur boðið fjörutíu þjóðarleiðtogum og þar á meðal Xi Jinping, forseta Kína, á fjarráðstefnu um veðurfarsbreytingar í vikunni. Þar stendur til að ræða og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Le Yucheng, aðstoðarutanríkisráðherra Kína, gaf í skyn á föstudaginn að Kína myndi ekki samþykkja að draga úr losun á ráðstefnunni. Sagði hann að slíkt myndi reynast 1,4 milljarða manna þjóð erfitt og kröfur í garð Kína væru óraunhæfar.
Bandaríkin Kína Umhverfismál Loftslagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira