Smáskilaboð vógu þungt í nauðgunardómi sem var mildaður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. nóvember 2020 11:07 Landsréttur mildaði nauðgunardóm um þrjá mánuði vegna talsverðra tafa á málsmeðferðinni.
Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm sem karlmaður á þrítugsaldri hlaut á síðasta ári úr tveimur árum niður í 21 mánuð. Karlmaðurinn var dæmdur fyrir að hafa nauðgað vinkonu sinni. Talsverðar tafir á málsmeðferð málsins hjá ákæruvaldinu og héraðsdómi eru ástæður þessa að dómurinn var mildaður. Skilaboð sem maðurinn sendi vinkonunni daginn eftir vógu þungt í mati Landsréttar. Héraðsdómur dæmdi í málinu í febrúar árið 2019 en brotið var framið árið 2017 þegar konan var að fagna útskrift úr menntaskóla. Nauðgunin átti sér stað eftir að heim var komið en konan hafði beðið manninn um að aðstoða sig við að koma sér heim. Í kjölfarið stakk hún upp á því að hann myndi gista svo hann þyrfti ekki að koma sér heim. Jafnframt tók hún fram við skýrslutöku að hún hafi aldrei ætlað sér að gera neitt með ákærða, enda væri hún að hitta fyrrverandi kærasta sinn og þeir væru bestu vinir. Konan fór upp í rúm og sneri sér að veggnum til þess að taka sem minnst pláss svo maðurinn gæti líka farið að sofa. Hann hafi slegið hana rétt í andlitið til þess að vekja hana og spurt hvort hún væri vakandi, hún hafi umlað eitthvað og farið aftur að sofa enda verulega ölvuð, að því er fram kemur í dómi héraðsdóms. Stuttu síðar hafi hún svo rankað við sér við það að maðurinn var að hafa samfarir við hana. Hún hafi í fyrstu ekki áttað sig á því hvað væri að gerast en áttað sig á því nokkrum sekúndum síðar, ýtt honum frá og spurt hvað hann væri að gera. Maðurinn baðst þá fyrirgefningar en hún sagði honum að koma sér út. Héraðsdómi þótti sannað að maðurinn hefði haft samræði við konuna án hennar samþykkis og dæmdi manninn í tveggja ára fangelsi. Niðurstöðu héraðsdóms var áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp dóm sinn á föstudaginn. Framburður konunnar metinn staðfastur Í dómi Landsréttar segir að þótt þau tvö séu ein til frásagnar um hvað gerðist umræddan morgun liggi fyrir framburður fimm vitna sem hittu stúlkuna skömmu eftir að atvik gerðust, báru þau öll að konan hafi verið í miklu uppnámi. Hjúkrunarfræðingur sem tók á móti stúlkunni á neyðarmóttöku Landspítalans sama morgun sagði einnig að konan hefði verið í miklu uppnámi. Þá mat Landsréttur framburð konunnar staðfastan og trúverðugan. Framburður mannsins var einnig metinn nokkuð stöðugur en í dómi Landsréttar segir að miðað við ölvunarástand konunnar hafi manninum mátt vera ljóst að konan væri ekki fær um að taka afstöðu til þess hvort hún vildi hafa samræði við hann. Leit Landsréttur einnig til þess að maðurinn sendi konunni smáskilaboð að kvöldi umrædd dags þar sem hann baðst afsökunar og sagði að sér liði hræðilega yfir því hvað hafi gerst og hvort þau gætu ekki talað um þetta. Taldi Landsréttur því sannað að maðurinn hefði nauðgað konunni. Dómur héraðsdóms var hins vegar mildaður um þrjá mánuði vegna tafa á málsmeðferð málsins. „Um þrjú og hálft ár eru liðin frá því að atvik málsins gerðust en ákærði var þá tvítugur. Rúmt ár leið frá því að rannsókn lögreglu var lokið þar til ákæra í málinu var gefin út. Þá liðu nærri sjö mánuðir frá því að ríkissaksóknari óskaði eftir dómsgerðum frá héraðsdómi þar til þær voru afgreiddar þaðan. Hafa þannig orðið tafir á málsmeðferðinni sem ákærða verður ekki um kennt,“ segir í dómi Landsréttar. Þarf maðurinn að greiða konunni 1,5 milljónir í miskabætur auk alls áfrýjunarkostnaðar málsins, 1,8 milljónir króna.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara í það minnsta fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira