Hlýjasti júlímánuður aldarinnar á Norður- og Austurlandi Eiður Þór Árnason skrifar 21. júlí 2021 17:16 Veðrið hefur leikið við Akureyringa og nærsveitunga í júlí. Vísir Yfirstandandi júlímánuður er sá hlýjasti sem mælst hefur á Norður- og Austurlandi á þessari öld. Hið sama á við um Miðhálendið en óvenjuhlýtt hefur verið í landshlutunum að undanförnu.
Aðra sögu er að segja í Reykjavík en aðeins hafa mælst 64,3 sólskinsstundir í borginni það sem af er þessum mánuði eða um 50 færri en í meðalári. Frá þessu greinir Trausti Jónsson veðurfræðingur í nýrri samantekt sinni. Fyrstu 20 daga júlímánaðar hefur meðalhiti á Akureyri mælst 14,4 stig sem er meira en einu stigi hærra en áður hefur sést. Er hiti nú 3,5 stigum fyrir ofan meðalhita síðustu tíu ára. Óvenjuþurrt í veðri Meðalhiti fyrstu 20 daga júlímánaðar í Reykjavík er 11,1 stig. Er það 0,2 stigum fyrir neðan meðalhita síðustu tíu ára og um að ræða fjórtánda hlýjasta júlímánuð á öldinni. Hlýjasta veðurstöð landsins er nú við Upptyppinga í Ódáðahrauni þar sem meðalhiti hefur verið 14,8 stig það sem af er júlímánuði. Að sögn Trausta er óvenjulegt að hlýjast sé á hálendinu. Þurrt hefur verið í veðri og úrkoma í Reykjavík mælist 7,9 mm í júlí. Það er aðeins fimmtungur af meðallagi og hefur aðeins tvisvar mælst jafnlítil eða minni úrkoma sömu daga á þessari öld. Ekki hefur þó verið jafnþurrt alls staðar suðvestan- og vestanlands og í Reykjavík. Úrkoma á Akureyri mælist 2,4 mm og hefur mjög sjaldan verið minni þessa sömu daga.
Veður Tengdar fréttir Yfir 27 stiga hiti á Norðausturhorninu Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við landsmenn á Norðausturhorni landsins í dag. Hiti mældist víða yfir 27 gráðum. 20. júlí 2021 20:17 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Innlent Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Erlent Fleiri fréttir Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Fer að snjóa sunnan- og vestantil Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Norðanátt og víða él á landinu Víða dálítil snjókoma eða él Hvöss austanátt syðst á landinu Bætir í vind og úrkomu í nótt Skýjað að mestu en úrkoma eða rigning sunnantil Aflétta rýmingu í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Allhvöss norðaustanátt og snjór norðan- og austantil Vonskuveður um allt land og vegir víða ófærir Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Gular viðvaranir um allt austanvert landið Gul viðvörun á suðausturlandi um helgina Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Líkur á erfiðum akstursskilyrðum Þokkalega bjart veður víðast hvar Él norðantil en bjartviðri suðvestanlands Vegir lokaðir víða um landið Sjá meira
Yfir 27 stiga hiti á Norðausturhorninu Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við landsmenn á Norðausturhorni landsins í dag. Hiti mældist víða yfir 27 gráðum. 20. júlí 2021 20:17