Fyrrverandi fjármálaráðherra í átta ára fangelsi fyrir spillingu Kjartan Kjartansson skrifar 4. desember 2020 15:34 Karl-Heinz Grasser (t.h.) með lögmönnum sínum í dómsal í Vín í dag. Vísir/EPA Kviðdómur í Vín dæmdi Karl-Heinz Grasser, fyrrverandi fjármálaráðherra Austurríkis, í átta ára fangelsi fyrir mútuþægni og misnotkun valds í dag.
Grasser auðgaðist á því að koma innherjaupplýsingum til fjárfesta um sölu stjórnvalda á um 60.000 íbúðum í tengslum við einkavæðingu opinbers fasteignafélags árið 2004. Hann lét náinn vin sinn vita hversu há boð hefðu borist í eignir og kom vinurinn upplýsingunum áfram til fasteignafélags sem gat þá boðið örlítið hærra og tryggt sér eignirnar á eins lágu verði og hægt var. Þýska fréttastofan Deutsche Welle segir að Grasser hafi haft um 9,6 milljónir evra, jafnvirði meira en 1,4 milljarða íslenskra króna, upp í krafsinu í þóknanir frá fyrirtækinu sem keypti íbúðirnar. Það er áætlað um eitt prósent af söluverði eignanna. Málið hefur verið kennt við BUWOG, opinbera fasteignafélagið sem var einkavætt. Fjórtán aðrir hátt settir stjórnmálamenn, stjórnendur og bankamenn voru ákærðir í málinu en réttarhöldin hafa staðið yfir í þrjú ár. Saksóknarar sögðu umfang glæpanna „ótrúlegt“. Grasser var fjármálaráðherra frá 2000 til 2007 og var fulltrúi öfgahægrisinnaða Frelsisflokksins til 2003. Hann bar fyrir dómi að um hálf milljón evra, jafnvirði meira en 76 milljóna íslenskra króna, sem fóru um sama bankareikning og ólöglegar greiðslur í málinu og hann kom með til landsins hafi hann í raun fengið frá tengdamóður sinni, að sögn Politico. Grasser er giftur inn í eina auðugustu fjölskyldu Austurríkis. Lögmaður Grasser segir að hann ætli að áfrýja dómnum til þess ítrasta. Hann heldur því fram að kviðdómendur hafi ekki gert sér grein fyrir því að gríðarlegur þrýstingur neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar hafi í raun dæmt skjólstæðing sinn fyrirfram. Wolfgang Schüssel úr Austurríska þjóðarflokknum var kanslari þegar brotin voru framin. Hann hætti afskiptum af stjórnmálum árið 2011 í kjölfar hrinu spillingarmála.
Austurríki Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Erlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Sjá meira