Óskar Hrafn: Gjafmildir, mjúkir og grófum okkur holu Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2021 21:45 Óskar Hrafn Þorvaldsson bíður eftir fyrsta sigri sumarsins. VÍSIR/VILHELM „Ég er bara sáttur með stigið,“ voru fyrstu viðbrögð Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks, eftir 3-3 jafntefli við nýliða Leiknis í Breiðholti í kvöld, í 2. umferð Pepsi Max deildar karla.
Eftir 2-0 tap gegn KR í fyrsta leik lenti Breiðablik, sem spáð var Íslandsmeistaratitli, 3-1 undir gegn Leikni í kvöld. Jason Daði Svanþórsson náði hins vegar að bjarga Blikum um stig með tveimur mörkum á síðustu tuttugu mínútum leiksins: „Við vorum undir og komum til baka, svo úr því sem komið var er ég sáttur með stigið. Það er bara ljóst að við erum staddir þar sem við erum. Við grófum okkur holu en endum leikinn ágætlega,“ sagði Óskar. Gáfum þeim frumkvæðið Staðan var 1-1 í hálfleik eftir að Leiknismenn jöfnuðu metin í uppbótartíma. „Mér fannst við stjórna fyrri hálfleiknum ágætlega, kannski fyrir utan fyrstu tíu mínúturnar, en svo gáfum við þeim þetta mark undir lok hálfleiksins. Það gaf þeim blóð á tennurnar. Fyrri hluta seinni hálfleiks fannst mér við vera helvíti gjafmildir og einhvern veginn mjúkir. Við gáfum þeim frumkvæðið,“ sagði Óskar. „Svo náðum við að koma til baka og síðustu tuttugu mínúturnar var bara eitt lið á vellinum. Við að reyna að sækja á þá og þeir að reyna að halda sínu. Ég er ánægður með mína menn að þeir skildu ekki hætta heldur klára leikinn af krafti,“ sagði Óskar. Ætla að vera sáttur með þetta stig Leiknismenn gengu svekktir af velli en eiga kannski síðar meir eftir að meta það að hafa fengið stig í kvöld. „Þeir vörðust vel. Þá þarftu að færa boltann hraðar og það tókst ekki alltaf hjá okkur. Þegar það tókst þá náðum við að opna þá og sennilega hefði maður viljað að það hefði gerst oftar. En við erum bara þar sem við erum. Auðvitað viltu alltaf vinna leiki en ég held að við verðum að horfa raunhæft á þetta. Við byrjuðum illa í fyrsta leiknum og töpuðum honum. Svo komum við okkur í holu hér en sýnum karakter með því að jafna. Ég ætla bara að vera sáttur með þetta stig,“ sagði Óskar. Jason staðið undir öllum væntingum og jafnvel meira en það Ljósasti punkturinn hjá Blikum var frammistaða fyrrnefnds Jasons Daða: „Jason stóð sig vel. Hann spilaði vel, skoraði tvö góð mörk og var flottur,“ sagði Óskar um hinn 21 árs gamla Jason sem kom frá Aftureldingu í vetur, en var honum strax ætlað stórt hlutverk? „Ég sá ákveðna eiginleika sem hann hefur og hann hefur staðið undir öllum þeim væntingum sem við höfum gert til hans, og jafnvel enn meira,“ sagði Óskar.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Körfubolti Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum FH-ingar kynna besta lið sögunnar Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur 2-1 | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Sjá meira