„Mjög góður“ leigubílstjóri kom Arnari til bjargar í ævintýraferð heim til Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2020 12:00 Arnar Þór Viðarsson sat í fimm tíma í leigubíl til að komast út á völl. Samsett/Getty
Ævintýri Arnars Þórs Viðarssonar eru komnar í heimsfréttirnar enda ekki á hverjum degi sem menn stýra sitthvoru fótboltalandsliði tvo daga í röð og það í mismunandi löndum. Arnar Þór Viðarsson fékk góða aðstoð við að koma sér yfir Ermarsundið og út á flugvöll til að ná flugi heim til Íslands í tæka tíð fyrir landsleikinn á móti Belgíu. Reuters fjallaði um „neyðarþjálfara“ íslenska landsliðsins í leiknum á móti Belgíu en blaðamaður þessarar þekktu fréttastofu ræddi við Arnar Þór Viðarsson um ævintýri hans aðfaranótt miðvikudagsins 14 október 2020. Arnar Þór Viðarsson var nýbúinn að stýra íslenska 21 árs landsliðinu til sigurs á móti Lúxemborg þegar fréttist af vandræðum þjálfarateymis íslenska landsliðsins en allt starfslið A-landsliðsins þurfti að fara í sóttkví. Arnar er ekki aðeins þjálfari 21 árs landsliðsins heldur er hann einnig yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ. Yfirmenn hans hjá KSÍ ákváðu að hann myndi koma strax heim og stýra liðinu með Davíð Snorra Jónassyni, þjálfara sautján ára landsliðsins. Arnar keyrði fyrst 250 kílómetra leið frá Lúxemborg til heimilis síns í Lokeren. Þar skildi hann eftir bílinn sinn og tók síðan leigubíl frá Lokeren til flugvallarins í Luton. Sú leið er rúmlega 400 kílómetrar og má áætla að þeir félagar hafi verið um fimm klukkutíma á leiðinni. „Sem betur fer þá fékk ég mjög góðan leigubílstjóra sem keyrði mig á flugvöllinn í Luton. Ég náði að sofa aðeins í bílnum. Þaðan tók ég flug heim til Íslands um morguninn. Þetta var ævintýri,“ sagði Arnar Þór Viðarsson í samtali við Reuters. „Þetta snerist aðallega um það að það varð að vera þjálfari á bekknum með nauðsynleg réttindi og einhver sem gæti komið með andlegan stuðning,“ sagði Arnar Þór. „Við unnum mikilvægan leik á móti Rúmeníu í síðustu viku og sá leikur var í forgangi. Þessi leikur var góð reynsla fyrir mikil og tækifæri til að keppa á móti besta liði heims,“ sagði Arnar Þór. Hér má sjá mögulega leið leigubílstjórans frá Lokern og út á flugvöll í Luton á Englandi.GoogleMaps
Þjóðadeild UEFA Íslendingar erlendis Mest lesið Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Íslenski boltinn Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Messi minnist fallins félaga Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Hrósar Alonso fyrir að taka ekki við Liverpool eða Bayern: „Þarf ekki að sanna neitt“ Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Íslenski boltinn