„Ég er ekki að biðja um eitthvað brjálæðislegt“ Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2022 13:01 Mohamed Salah er sennilega besti knattspyrnumaður heims í dag og vill laun við hæfi. EPA-EFE/FACUNDO ARRIZABALAGA Mohamed Salah segist ekki vera að biðja um neitt „brjálæðislegt“ í samningaviðræðum sínum við Liverpool, sem halda áfram að dragast á langinn.
Þetta segir Salah í stóru viðtali við tímaritið GQ. Þar er Egyptinn magnaði kynntur sem „besti leikmaður heims í dag“ en þess jafnframt getið að heimurinn hafi ekki alveg viðurkennt það enn þá. Mohamed Salah. Football legend. Fashion icon.(via British GQ) pic.twitter.com/jrRhAUe1Wv— ESPN FC (@ESPNFC) January 11, 2022 Salah, sem er 29 ára, hefur verið Liverpool afar dýrmætur síðan hann kom frá Roma sumarið 2017 og kannski aldrei meira en í vetur. Hann er langmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 16 mörk í 20 leikjum. Samningur Salah við Liverpool var síðast endurnýjaður árið 2018 og rennur hann út eftir eitt og hálft ár, sumarið 2023. Viðræður um nýjan samning hafa enn engu skilað en Salah segir það vera á ábyrgð eigenda Liverpool. Hann sé ekki með óraunhæfar kröfur. „Mig langar að vera áfram en þetta er ekki í mínum höndum. Þetta er í þeirra höndum,“ sagði Salah við GQ. „Þeir vita hvað ég vil. Ég er ekki að biðja um eitthvað brjálæðislegt,“ sagði Salah. Mo Salah on his contract: I want to stay, but it s not in my hands. It s in their hands. They know what I want. I m not asking for crazy stuff , he told GQ. #LFC I love the fans & club. But with the administration, they ve been told the situation. It s in their hands . pic.twitter.com/0gAtTYWOZg— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 11, 2022 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði við Sky Sports í síðasta mánuði að félagið ætti í mjög góðu samtali við Salah um nýjan samning. Enn stendur þó eitthvað í veginum. Í grein GQ segir að fyrir Salah snúist nýr samningur um meira en peninga. Hann vilji fá viðurkenningu á því sem hann hafi gert og geri fyrir Liverpool, sem vann langþráðan Englandsmeistaratitil og Evrópumeistaratitil með Salah í broddi fylkingar. „Málið er að þegar maður biður um eitthvað og þeir sýna að þeir geta gefið manni eitthvað, þá ættu þeir að gera það því þeir kunna að meta það sem maður hefur gert fyrir félagið. Ég er núna á fimmta ári mínu hérna. Ég þekki félagið mjög vel. Ég elska stuðningsmennina. Þeir elska mig. En stjórnin hefur fengið að vita stöðuna. Þetta er í þeirra höndum,“ sagði Salah.
Enski boltinn Mest lesið Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Íslenski boltinn Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Enski boltinn Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Sjá meira