Valur vann 6:1-stórsigur gegn Þrótti í 11. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á Origo-vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik sáu Þróttarar ekki til sólar í þeim síðari á meðan Valskonur gengu vægast sagt á lagið.
Fyrri hálfleikur var ansi fjörugur og var það með töluverðum ólíkindum að Þróttarar hafi ekki tekið forystuna strax á sjöttu mínútu.
Andrea Rut Bjarnadóttir átti þá hættulega fyrirgjöf frá vinstri kanti sem fór af Mist Edvardsdóttur og Sandra Sigurðardóttir sló boltann upp í loftið til að koma í veg fyrir sjálfsmark, Dani Rhodes var þá ein fyrir opnu marki við markteiginn en skallaði í þverslána.
Það voru hins vegar Valskonur sem tóku forystuna á 18. mínútu. Cyera Hintzen átti þá flotta stungusendingu þar sem Sóley María Steinarsdóttir og Ída Marín voru í miklu kapphlaupi, Sóley María hikaði eitthvað á meðan Ída Marín gaf í og rennitæklaði boltann í hornið af miklu harðfylgi.
Eftir markið voru Valskonur með öll völd á vellinum og því var það ansi óvænt þegar Þróttur jafnaði metin á 33. mínútu.
Jelena Tinna Kujundzic átti þá langa sendingu fram og Guðrún Gyða Haralz var sloppin í gegn. Hún renndi sér í boltann og náði skoti og lenti í samstuði við Söndru í leiðinni. Mist var mætt á markteiginn og náði snertingu en missti boltann frá sér til Guðrúnar Gyðu sem þurfti smá tíma til að athafna sig og fékk hann. Að lokum smellti Guðrún Gyða boltanum í fjærhornið í stöngina og inn. Á meðan lá Sandra eftir við vítateigslínuna í kjölfar samstuðsins.
Þróttur hóf þá að leika betur og var ögn sterkari aðilinn um stund. Hins vegar voru það heimakonur í Val sem náðu forystunni aftur skömmu fyrir leikhlé.
Íris Dögg Gunnarsdóttir í marki Þróttar átti þá slaka sendingu sem Mary Alice Vignola komst inn í. Hún kom boltanum á Hintzen og fékk hann svo aftur við vítateigslínuna, skaut að marki og boltinn af varnarmanni og í netið.
Staðan orðin 2:1 og Vignola búin að skora gegn sínum gömlu félögum, en hún lék með Þrótti á síðasta tímabili.
Síðari hálfleikur fór rólega af stað en eftir tæplega klukkutíma leik komst Valur í 3:1. Hornspyrna Dóru Maríu Lárusdóttur fór þá í gegnum allan pakkann og barst til Láru Kristínar Pedersen á fjærstönginni sem var ein á auðum sjó og kláraði snyrtilega með innanfótar skoti upp í fjærhornið.
Rúmum tíu mínútum síðar kom fjórða mark Valskvenna.
Varamaðurinn Sólveig Jóhannesdóttir Larsen brunaði þá inn í vítateiginn þar sem hún var í harðri baráttu við Jelenu Tinnu sem náði að renna sér í boltann. Sólveig náði hins vegar boltanum aftur og renndi honum til hliðar á Elínu Mettu Jensen sem átti ekki í vandræðum með að skora af stuttu færi.
Valskonur voru ekki hættar og bættu við fimmta markinu á 80. mínútu. Varamaðurinn Fanndís Friðriksdóttir tók þá hornspyrnu frá hægri og annar varamaður, Arna Eiríksdóttir, skoraði með þrumuskalla á fjærstönginni. Þetta var hennar fyrsta snerting í leiknum eftir að hún hafði komið inn á nokkrum sekúndum fyrr.
Í uppbótartíma kom svo sjötta markið. Fanndís átti þá frábæra stungusendingu inn á enn annan varamann, Clarisu Larisey, sem brunaði í gegn, tók vel við boltanum og kláraði laglega í fjærhornið.
6:1-sigur staðreynd þar sem Valskonur voru óstöðvandi í síðari hálfleiknum.
Eftir nokkuð jafnræði heilt yfir í fyrri hálfleik áttu Þróttarar engin svör við gífurlegri pressu og hröðum og kröftugum sóknarleik Valskvenna í þeim síðari.
Varamenn komu afskaplega sprækir og skæðir af bekknum og sáu til þess að Pétur Pétursson og Eiður Benedikt Eiríksson, þjálfarar Vals, munu koma til með að þurfa að takast á við dúndrandi hausverk þegar kemur að liðsvali fyrir næsta leik.