Erlent

Hæstaréttardómaraefni Trump samþykkt í þingnefnd

Kjartan Kjartansson skrifar
Amy Coney Barrett er aðeins 48 ára gömul og gæti setið í hæstarétti næstu áratugina. Hún vildi ekki svara spurningum um afstöðu sína til þungunarrofs og lögmæti sjúkratryggingalaga þegar hún bar vitni fyrir dómsmálanefndinni á dögunum.
Amy Coney Barrett er aðeins 48 ára gömul og gæti setið í hæstarétti næstu áratugina. Hún vildi ekki svara spurningum um afstöðu sína til þungunarrofs og lögmæti sjúkratryggingalaga þegar hún bar vitni fyrir dómsmálanefndinni á dögunum. AP/J. Scott Applewhite

Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu Donalds Trump forseta á Amy Coney Barrett sem hæstaréttardómara í dag. Demókratar sögðust ætla að sniðganga atkvæðagreiðsluna til þess að mótmæla vinnubrögðum repúblikana sem fara með meirihlutann í nefndinni.

Mitch McConell, leiðtogi meirihluta Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni, sagði í dag að greidd yrðu atkvæði um útnefningu Barrett í þingdeildinni þegar á mánudag. Aðeins þarf einfaldan meirihluta til að staðfesta skipan hennar sem dómara við réttinn til lífstíðar. Repúblikanar eru með 53 þingsæti af hundrað í öldungadeildinni og Mike Pence varaforseti getur greitt oddaatkvæði falli atkvæði jöfn.

Tíu fulltrúar demókrata í dómsmálanefndinni, þar á meðal Kamala Harris, varaforsetaefni flokksins, ætluðu að sniðganga atkvæðagreiðsluna vegna óánægju þeirra með að repúblikanar ætluðu að þvinga staðfestingu Barrett í gegn með flýti fyrir kosningar, að sögn Washington Post.

Þeir hafa vísað til þess að McConnell hafnaði að fjalla um dómaraefni Baracks Obama, þáverandi forseta, þegar sæti við dómarann losnaði tíu mánuðum fyrir kosningarnar árið 2016. Hélt McConnell því þá fram að of skammt væri til kosninga og að nýr forseti ætti að fá að velja dómaranna. Repúblikanar hafa sagt aðstæður aðrar nú þar sem þeir ráða bæði forsetaembættinu og öldungadeildinni, ólíkt árið 2016 þegar Obama var forsetinn en repúblikanar fóru með meirihluta í deildinni.

„Þetta eru þvílík brot á bandarískum hefðum, gildum, velsæmi og heiðri,“ sagði Chuck Schumer, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni.

Breyttu fundarsköpum

Repúblikanar breyttu fundarsköpum til þess að geta haldið áfram með staðfestingu Barrett í embætti. Þau höfðu fram að þessu gert ráð fyrir að ekki væri ákvörðunarbær meirihluti til staðar nema að minnsta kosti tveir fulltrúar minnihlutans væru viðstaddir.

Lindsey Graham, formaður nefndarinnar úr röðum repúblikana, sagði Barrett eiga skilið að vera skipuð dómari og að þingið myndi staðfesta hana. Sagði hann demókrata hafa „valið að taka ekki þátt“.

Þegar Barrett verður staðfest í embætti verða dómarar sem repúblikanar skipuðu komnir í öruggan meirihluta í hæstarétti, sex gegn þremur sem voru skipaðir af forsetum úr röðum demókrata. Þannig gæti dómurinn tekið skarpa hægri beygju til næstu áratuganna. Barrett er talin verða á meðal íhaldssömustu dómaranna við réttinn.

Innan við tvær vikur eru nú til forseta- og þingkosninga í Bandaríkjunum. Töluverðar vangaveltur hafa verið uppi um að nái Joe Biden kjöri sem forseti og demókratar vinni meirihluta í öldungadeildinni gætu þeir reynt að bæta við dómurum við hæstarétt til að jafna hlutföll á milli íhaldssamra og frjálslyndar dómara.

Í viðtali við 60 mínútur sem á að birtast um næstu helgi vildi Biden ekki ganga svo langt en sagðist ætla að koma á fót þverpólitískum starfshópi sem eigi að skila tillögum að umbótum á réttarkerfinu og dómaraskipunum verði hann forseti.


Tengdar fréttir

Vildi ekki svara spurningu um þungunarrof

Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt til Hæstaréttar landsins, neitaði í dag að svara spurningu um hvað henni þætti um dómafordæmi sem veitir bandarískum konum rétt til þungunarrofs og hvort fella ætti það fordæmi úr gildi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×