N1 Rafmagn biðst velvirðingar og ætlar að endurgreiða mismun frá 1. nóvember

„Við störfum á neyt­enda­mark­aði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur ber­ast og biðj­umst vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ segir í yfirlýsingu frá N1 Rafmagni, sem hefur verið gagnrýnt fyrir tvöfalda verðlagningu á raforku.

Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri N1.
Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri N1.
Auglýsing

N1 Raf­magn seg­ist taka mark á þeim athuga­semdum sem gerðar hafa verið við tvö­falda verð­lagn­ing­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á raf­orku í opin­berri umræðu und­an­farna tvo daga og biðst fyr­ir­tækið „vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ í yfir­lýs­ingu sem Hin­rik Örn Bjarna­son fram­kvæmda­stjóri N1 sendi frá sér á sjö­unda tím­anum í kvöld.

Fyr­ir­tækið seg­ist ætla að selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta til allra sinna við­skipta­vina, sama hvort þeir hafi skráð sig í við­skipti eða komið í við­skipti óaf­vit­andi í gegnum þrauta­vara­leið­ina svoköll­uðu. Fyr­ir­tækið seg­ist jafn­framt ætla að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta aftur til 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins­.

Í yfir­lýs­ingu N1 segir að það hafi aldrei verið ætl­unin að blekkja neyt­endur á nokkurn hátt og að fyr­ir­tæk­inu þyki leitt ef neyt­endur túlki það svo. „Vegna skyndi­legrar inn­komu þrauta­vara­við­skipta til fyr­ir­tæk­is­ins, þurfti N1 Raf­magn að kaupa orku handa þessum hópi á skamm­tíma­mark­aði þar sem verð eru afar breyti­leg og hafa hækkað ört á síð­ustu miss­erum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá N1.

Þar er því bætt við að N1 Raf­magn hafi á engum tíma­punkti „fengið mis­mun á upp­gefnum taxta sam­kvæmt verð­skrá og þrauta­vara­taxta í sinn vasa“, heldur hafi Lands­virkj­un, sem selur N1 orku á skamm­tíma­mark­aði „á mun dýr­ara verði en til langs tíma“, fengið mis­mun­inn í vas­ann.

Fyr­ir­tækið seg­ist hvetja Orku­stofnun ein­dregið til að hraða vinnu sinni varð­andi þær kvaðir sem orku­sali til þrauta­vara þarf að und­ir­gang­ast og segir í yfir­lýs­ing­unni að það sé erfitt fyrir þann orku­sala sem verður fyrir val­inu að gera ráð fyrir þessum hóp í lang­tíma­við­skiptum sínum við birgja.

„Taka þarf inn í mynd­ina ófyr­ir­sjá­an­legar verð­sveiflur á orku­mark­aði og getu orku­sal­ans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjöru­m,“ ­segir í yfir­lýs­ingu N1 Raf­magns.

Auglýsing

Yfir­lýs­ing N1 í heild sinni má lesa hér að neðan

Í ljósi umræðu síð­ustu tveggja daga varð­andi N1 Raf­magn sem sölu­að­ila til þrauta­vara, vill N1 Raf­magn koma eft­ir­far­andi á fram­færi.

Ákveðið hefur verið að frá og með 1. jan­úar 2022 muni N1 Raf­magn selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta til allra okkar við­skipta­vina, hvort sem þeir hafa skráð sig í við­skipti hjá okkur eða koma í gegnum þrauta­vara­leið stjórn­valda. Jafn­framt hefur verið ákveðið að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum þegar félagið var valið af Orku­stofnun til að sinna þessu hlut­verki. Við störfum á neyt­enda­mark­aði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur ber­ast og biðj­umst vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr.

Aldrei var ætl­unin að blekkja neyt­endur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neyt­endur túlka það svo. Vegna skyndi­legrar inn­komu þrauta­vara­við­skipta til fyr­ir­tæk­is­ins, þurfti N1 Raf­magn að kaupa orku handa þessum hópi á skamm­tíma­mark­aði þar sem verð eru afar breyti­leg og hafa hækkað ört á síð­ustu miss­er­um. Því skal haldið til haga að N1 Raf­magn hefur á engum tíma­punkti fengið mis­mun á upp­gefnum taxta sam­kvæmt verð­skrá og þrauta­vara­taxta í sinn vasa, heldur Lands­virkjun sem selur orku á skamm­tíma­mark­aði á mun dýr­ara verði en til langs tíma.

Á sama tíma hvetjum við Orku­stofnun ein­dregið til að hraða vinnu sinni hvað varðar þær kvaðir sem orku­sali til þrauta­vara þarf að und­ir­gang­ast þar sem erfitt er fyrir þann sem fyrir val­inu verður að gera ráð fyrir þessum hóp í lang­tíma­við­skiptum sínum við birgja. Taka þarf inn í mynd­ina ófyr­ir­sjá­an­legar verð­sveiflur á orku­mark­aði og getu orku­sal­ans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjör­um.

Við fögnum virkri sam­keppni og munum nú sem áður þjón­usta okkar við­skipta­vini með það að leið­ar­ljósi að bjóða lægsta verð hverju sinni. (Sjá https://aur­bjorg.is/raf­magn). Við hvetjum alla neyt­endur til að skrá sig sjálfa hjá þeim orku­sala sem þeir kjósa, án aðkomu stjórn­valda.

Virð­ing­ar­fyllst,

Hin­rik Örn Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri N1

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent