Wolfsburg er þýskur bikarmeistari í knattspyrnu kvenna eftir sigur á Bayern München í úrslitaleik, 2:0, í Köln í dag.
Er Wolfsburg þar með komið með tíu bikarmeistaratitla og níu í röð.
Bæði mörk Wolfsburg komu í fyrri hálfleik en það fyrra skoraði Jule Brand og Dominique Janssen skoraði seinna.
Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á 68. mínútu. Þá lék Glódís Perla Viggósdóttir allan leikinn fyrir Bayern en Cecilía Rán Rúnarsdóttir er meidd.