Nagladekk óheimil á götum borgarinnar

Nagladekk slíta vegum margfalt hraðar en ónegld dekk.
Nagladekk slíta vegum margfalt hraðar en ónegld dekk. mbl.is/Sigurður Bogi

Nagladekk eru ekki leyfileg á götum Reykjavíkurborgar eftir 15. apríl. Lögregla hefur leyfi til að sekta bílsstjóra sem keyra á nagladekkjum. Ökumenn eru því hvattir til að skipta um dekk undir bifreiðunum eins fljótt og auðið er. 

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur meðal annars fram að nagladekk valdi hávaðamengun, sliti á götum, mengun, svifryki, óþægindum í öndunarfærum og meiri eldsneytiseyðslu bifreiða. 

Samkvæmt nýlegri rannsókn um áhrif hraða á mengun slíta nagladekk á vegum 20 til 30 falt hraðar en ónegld dekk. Nagladekk eru því yfirgnæfandi þegar kemur að framleiðslu svifryks vegna umferðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert