Við áttum sigurinn fyllilega skilið fannst mér Sverrir Mar Smárason skrifar 19. september 2021 17:16 Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýra Keflavík í sameiningu. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður í leikslok og stoltur af sínu liði sem fór með þrjú mikilvæg stig úr Breiðholtinu eftir sigur á Leikni Reykjavík. „Frábær sigur. Leiknir eru búnir að taka tuttugu stig hérna á heimavelli í sumar. Vinna Val og Víking og jafntefli við Breiðablik og ég veit ekki hvað. Bara ofboðslega stoltur af strákunum fyrir vinnuna sem við lögðum á okkur, skipulagið gott og mikill dugnaður í okkur. Við áttum sigurinn fyllilega skilið fannst mér,“ sagði Sigurður Ragnar að leik loknum. Sigurmarkið kom á 23.mínútu og það gerði Joey Gibbs beint úr aukaspyrnu. Bæði lið hefðu getað bætt við mörkum í leiknum í dag en lokatölur urðu 0-1 fyrir Keflavík. „Frábært mark hjá Joey og mér fannst við eiga að skora fleiri mörk í fyrri hálfleiknum sérstaklega. Við vissum að Leiknir eru með gott lið, búnir að standa sig vel í sumar og við erum svona að endurheimta menn núna í síðustu tveimur leikjum. Það hefur vantað marga hjá okkur, verið meiðsli og leikbönn og spilað færri í tveimur leikjum frá og með fyrri hálfleik. Mjög gott hjá okkur að komast í gegnum þetta og vinna leiki aftur. Ég er bara stoltur af strákunum og frábær sigur.“ Bæði lið vildu víti í leiknum í dag. Leiknir vildu reyndar tvö víti en Keflvíkingar eitt. Sigurður Ragnar segir dómarana hafa komist vel frá leiknum. „Það voru fullt af svona atvikum sem voru umdeild í leiknum en mér fannst dómararnir komast bara vel frá leiknum, þetta var erfiður leikur að dæma. Við töpuðum 5-1 hérna í fyrra á móti Leikni og vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur þannig það er frábært að hafa snúið þessu við og fara með sigur héðan,“ sagði Sigurður um dómara leiksins. Keflavík bætir þremur stigum við sig í deildinni með sigrinum í dag og eru því komnir með 21 stig. Það gæti dugað ef önnur úrslit spilast þeim í hag. Næstu tveir leikir Keflavíkur eru gegn ÍA. Fyrst í Keflavík í deildinni og síðan í Mjólkurbikarnum á Akranesi. „Við horfum spenntir á HK-Stjarnan á morgun og svo bara þurfum við að taka okkar. Við erum að keppa að miklu, komnir í undarúrslit í bikar og ég er viss um að leikmennirnir okkar vilji taka þátt í því og byrja þann leik. Þeir þurfa að standa sig bæði í deild og bikar, þetta eru allt úrslitaleikir og spennandi leikir fram undan.“ „Við þurfum að gera okkar í stað þess að treysta á einhverja aðra,“ sagði Siggi Raggi og bætti síðan við um undanúrslitaleikinn í Mjólkurbikarnum „mér líst bara vel á hann, Skaginn eru með hörkulið og eru sérstaklega búnir að vera vaxandi undanfarið og örugglega komin góð stemning í þeirra lið. Þeir eru búnir að vinna góða sigra og þetta verður erfiður leikur fyrir okkur en við höfum líka verið að vaxa undanfarið og styrkjast. Það er mikið undir að komast í bikarúrslitaleik sem er stærsti leikur ársins alltaf í fótboltanum á Íslandi.“ Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta-deildin og úrslitaeinvígi Subway-deildarinnar Sport Fleiri fréttir 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Sjá meira
„Frábær sigur. Leiknir eru búnir að taka tuttugu stig hérna á heimavelli í sumar. Vinna Val og Víking og jafntefli við Breiðablik og ég veit ekki hvað. Bara ofboðslega stoltur af strákunum fyrir vinnuna sem við lögðum á okkur, skipulagið gott og mikill dugnaður í okkur. Við áttum sigurinn fyllilega skilið fannst mér,“ sagði Sigurður Ragnar að leik loknum. Sigurmarkið kom á 23.mínútu og það gerði Joey Gibbs beint úr aukaspyrnu. Bæði lið hefðu getað bætt við mörkum í leiknum í dag en lokatölur urðu 0-1 fyrir Keflavík. „Frábært mark hjá Joey og mér fannst við eiga að skora fleiri mörk í fyrri hálfleiknum sérstaklega. Við vissum að Leiknir eru með gott lið, búnir að standa sig vel í sumar og við erum svona að endurheimta menn núna í síðustu tveimur leikjum. Það hefur vantað marga hjá okkur, verið meiðsli og leikbönn og spilað færri í tveimur leikjum frá og með fyrri hálfleik. Mjög gott hjá okkur að komast í gegnum þetta og vinna leiki aftur. Ég er bara stoltur af strákunum og frábær sigur.“ Bæði lið vildu víti í leiknum í dag. Leiknir vildu reyndar tvö víti en Keflvíkingar eitt. Sigurður Ragnar segir dómarana hafa komist vel frá leiknum. „Það voru fullt af svona atvikum sem voru umdeild í leiknum en mér fannst dómararnir komast bara vel frá leiknum, þetta var erfiður leikur að dæma. Við töpuðum 5-1 hérna í fyrra á móti Leikni og vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur þannig það er frábært að hafa snúið þessu við og fara með sigur héðan,“ sagði Sigurður um dómara leiksins. Keflavík bætir þremur stigum við sig í deildinni með sigrinum í dag og eru því komnir með 21 stig. Það gæti dugað ef önnur úrslit spilast þeim í hag. Næstu tveir leikir Keflavíkur eru gegn ÍA. Fyrst í Keflavík í deildinni og síðan í Mjólkurbikarnum á Akranesi. „Við horfum spenntir á HK-Stjarnan á morgun og svo bara þurfum við að taka okkar. Við erum að keppa að miklu, komnir í undarúrslit í bikar og ég er viss um að leikmennirnir okkar vilji taka þátt í því og byrja þann leik. Þeir þurfa að standa sig bæði í deild og bikar, þetta eru allt úrslitaleikir og spennandi leikir fram undan.“ „Við þurfum að gera okkar í stað þess að treysta á einhverja aðra,“ sagði Siggi Raggi og bætti síðan við um undanúrslitaleikinn í Mjólkurbikarnum „mér líst bara vel á hann, Skaginn eru með hörkulið og eru sérstaklega búnir að vera vaxandi undanfarið og örugglega komin góð stemning í þeirra lið. Þeir eru búnir að vinna góða sigra og þetta verður erfiður leikur fyrir okkur en við höfum líka verið að vaxa undanfarið og styrkjast. Það er mikið undir að komast í bikarúrslitaleik sem er stærsti leikur ársins alltaf í fótboltanum á Íslandi.“ Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta-deildin og úrslitaeinvígi Subway-deildarinnar Sport Fleiri fréttir 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Sjá meira