„Hann gerði þetta ekki“: Íslendingur sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. mars 2021 14:32 Nikolina óskar þess að faðir hennar fái að snúa aftur til Íslands eða Serbíu. Hún segir að á Íslandi hafi fjölskyldan loks fundið frið og getað lifað eðlilegu lífi. Aðsend „Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ segir Nikolina Grnovic en faðir hennar Savo var handtekinn í Frankfurt á fimmtudag. Hann er sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu árið 1991.
Savo er serbneskur en eiginkona hans króatísk. Þau komu til Íslands árið 1998 á vegum Flóttamannastofnunar Evrópu, eftir að hafa flúið Króatíu til Serbíu árið 1995. Þau hafa búið hér síðan og eru með tvöfaldt ríkisfang en verið með annan fótinn í Serbíu þar sem þau eiga ættingja og vini. Yfirvöld í Þýskalandi handtóku Savo á grundvelli handtökuskipunnar sem gefin var út af Interpol í Zagreb. Honum er gert að sök að hafa átt aðild að morðum foreldra og tveggja barna þeirra, á heimili fjölskyldunnar í nóvember árið 1991. Nikolina Grnovic. Erlendir miðlar hafa greint frá því að mennirnir hafi tilheyrt lögreglusveitum Krajina, héraðs sem lýsti yfir sjálfstæði í kringum 1990 en tilheyrir nú Króatíu. Nikolina segir þetta rangt en faðir hennar hafi þjónað í júgóslavneska hernum, eins og aðrir menn á hans aldri. „Einhver sagði eitthvað; benti á hann“ Að sögn Nikolinu byggja ásakanirnar á hendur föður hennar á pólitískum grunni. „Hann sagði alltaf skoðun sína, sama hvað það kostaði. Hann barðist fyrir sannleikanum,“ segir hún. Upphaf málsins megi rekja aftur til 2017, þegar Savo var fyrst ásakaður um hinn hryllilega glæp. „Einhver sagði eitthvað; benti á hann,“ segir Nikolina en faðir hennar hafi síðan gert allt sem í hans valdi stendur til að upplýsa málið. Þetta hafi hann gert með yfirvöldum í Belgrad, þar sem viðurkennt sé að hann muni varla njóta réttlátrar málsmeðferðar í Króatíu. Nikolina segir hann hafa lagt fram gögn og vitnisburði til að sanna að hann átti ekki hlut að máli og sé með pappíra upp á það að hann sé frjáls ferða sinna. Það hafi því verið honum og fjölskyldunni gríðarlegt áfall þegar hann var handtekinn. „Hann hefur gert allt sem hann var beðinn um,“ segir Nikolina. „Hann vill líka að sá sem gerði þetta verði látinn gjalda fyrir það.“ Að sögn Nikolinu var Kozbasic-fjölskyldan nokkuð efnuð og morðingjarnir höfðu á brott með sér peninga og fleira þegar þeir flúðu, eftir að hafa myrt Milan, fæddan 1952, Gordan, fædda 1954, Tamöru 13 ára og Alena 8 ára. Hún bendir á að besta vinkona Tamöru hafi stigið fram á samfélagsmiðlum og lýst yfir stuðningi við Nikolinu og fjölskyldu hennar. Slavo Grnovic. Yrði beittur ofbleldi í Króatíu „Það eru engin sönnunargögn,“ segir Nikolina um fullyrðingar króatískra yfirvalda. Engin vitni, segir hún. Hún hefur sett sig í samband við yfirvöld á Íslandi og í Serbíu og hefur fengið þýskan lögfræðing til liðs við sig sem berst nú fyrir því að Savo verði ekki framseldur til Króatíu. „Það sem gerist ef hann verður framseldur er að hann verður settur í fangelsi og barinn og laminn,“ segir Nikolina. Það er auðheyrt að hún tekur stöðu föður síns afar nærri sér. Hún segir að frá því að málið hófst hafi Savo fengið fjölda hótana og nú sé hann einn í Frankfurt, geti hvorki skilið né tjáð sig, og þá hafi öll hjartalyfin sem hann þarf að taka þrisvar til fjórum sinnum á dag verið tekin af honum. „Við erum með þessi gögn sem sanna að hann er ekki glæpamaður,“ segir Nikolina, sem óskar þess nú heitast að faðir hennar fái að snúa aftur til Íslands eða Serbíu. „Hann gerði þetta ekki.“
Lögreglumál Utanríkismál Serbía Króatía Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýndin af þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Sjá meira