Sverrir og félagar í undanúrslit

Sverrir Ingi Ingason var fyrirliði PAOK í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason var fyrirliði PAOK í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sverrir Ingi Ingason og samherjar í PAOK slógu í kvöld topplið grísku úrvalsdeildarinnar, Panathinaikos, út úr bikarkeppninni þar í landi og eru komnir í undanúrslitin.

Sverrir var fyrirliði PAOK í kvöld og lék allan leikinn en liðið hafði unnið fyrri leik liðanna í Saloniki, 2:0. Panathinaikos, án Harðar Björgvin Magnússonar sem er meiddur, komst yfir snemma leiks, þannig að staðan var 2:1 samanlagt lengi vel.

Seint í leiknum jafnaði Nelson Oliveira fyrir PAOK úr vítaspyrnu, 1:1, og það urðu lokatölurnar. PAOK vann því 3:1 samanlagt og er komið í undanúrslit ásamt Olympiacos, Lamia og AEK Aþenu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert