Mánaðarlaun þingmanna komin upp í tæplega 1,3 milljón króna Jakob Bjarnar skrifar 23. júlí 2021 13:18 Þingmenn lepja ekki dauðann úr skel. Fjölmiðlamenn sem sjá má í baksviði þessarar ljósmyndar eru varla hálfdrættingar á við þá. vísir/vilhelm Laun þingmanna hækka enn og hafa hækkað um 16,7 prósent frá árinu 2016 en þá höfðu þau verið hækkuð til mikilla muna eða um 44,3 prósent í einni svipan.
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata veltir fyrir sér launaþróun þingmanna og reynir að setja launin í samhengi. Þetta gerir hann í pistli á heimasíðu sinni. „Fyrsti launaseðillinn minn frá Alþingi greiddi mér mánaðarlaun upp á 1.101.194 kr. Þá var árið 2016. Um síðustu mánaðarmót hækkuðu laun þingmanna enn og aftur og nú eru mánaðarlaunin orðin 1.285.411 kr. á mánuði og hækkuðu um 6,2% frá launum síðasta árs sem voru 1.210.368 kr,“ segir Björn Leví. Samtals er hækkunin 16,7 prósent frá árinu 2016, en daginn eftir kosningarnar það árið ákvað kjararáð að hækka laun þingmanna um 44,3 prósent. Á sama tíma hefur þróun verðlags verið 14,7 prósent. Björn Leví segir að eftir gríðarlega mikla hækkun kjararáðs 2016 hafi allt farið í hnút. Kjararáð var að endingu leyst upp og nýju lögin um meðatal reglulegra launa ríkisstarfsmanna komu í staðinn. Björn telur það ágætt fyrirkomulag, sanngjarnt, þó deila megi um upphæðina sem slíka. Hann birtir töflu yfir launahækkanirnar sem og töflu yfir meðaltal launa þeirra sem eru með yfir milljón í mánaðarlaun. Björn Leví deilir pistli sínum á Facebook og í athugasemd segir félagi hans í Pírötum, Jón Þór Ólafsson sem einnig hefur látið sig þessi mál varða að hollast væri ef þingmenn og ráðherrar væru við miðgildi launa landsmanna. „Já myndu þá betur skilja veruleika venjulegs fólks, sem er mikilvægt því þeir taka ákvarðanir um veruleika venjulegas fólks.“ Ekki er gert ráð fyrir yfirvinnu, þetta eru föst laun og þeir Jón Þór og Björn Leví segja að tímakaupið sé ekkert til að hrópa húrra yfir: „Já þeir væru þá á lægra tímakaupi en meirihluti landsmanna (þetta er brjáluð vinna) en það að fá að vinna að hugsjónum sínum hlýtur að reiknast vel til tekna, og ef ekki þá viljum við kannski ekki svoleiðis fólk við stjórn landsins,“ segir Jón Þór.
Alþingi Kjaramál Tengdar fréttir Laun Katrínar munu líklega hækka um 170 þúsund krónur í sumar Björn Leví Gunnarsson Pírati segir miklar launahækkanir þingmanna ekki forsvaranlegar en boltinn sé hjá ríkisstjórninni. 18. desember 2020 12:46 Telur afar hæpið að þingmenn vilji lækka laun sín og embættismanna vegna kreppunnar Jón Þór Ólafsson þingmaður telur lykilatriði að stjórnmálamenn deili kjörum með þjóðinni. 24. mars 2020 13:34 Sveitarstjórnarmenn frekir á fóðrum Bæjarstjórinn í Garðabæ á talsvert betra kaupi en kollegi hans í London. 21. ágúst 2019 13:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Þyrla forsetans sögð fundin Erlent Fleiri fréttir Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Sjá meira
Laun Katrínar munu líklega hækka um 170 þúsund krónur í sumar Björn Leví Gunnarsson Pírati segir miklar launahækkanir þingmanna ekki forsvaranlegar en boltinn sé hjá ríkisstjórninni. 18. desember 2020 12:46
Telur afar hæpið að þingmenn vilji lækka laun sín og embættismanna vegna kreppunnar Jón Þór Ólafsson þingmaður telur lykilatriði að stjórnmálamenn deili kjörum með þjóðinni. 24. mars 2020 13:34
Sveitarstjórnarmenn frekir á fóðrum Bæjarstjórinn í Garðabæ á talsvert betra kaupi en kollegi hans í London. 21. ágúst 2019 13:07