Vanda kallar eftir stuðningi við landsliðið unga sem leikur í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 11. október 2021 15:01 Albert Guðmundsson á ferðinni á Laugardalsvelli í 1-1 jafnteflinu við Armeníu á föstudaginn. vísir/jónína Vanda Sigurgeirsdóttir, nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands, hefur biðlað til stuðningsmanna um að standa undir nafni og mæta á Laugardalsvöll í kvöld til að styðja við bakið á íslenska karlalandsliðinu gegn Liechtenstein í síðasta heimaleik þess á árinu. Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ voru nú um nónbil um 4.400 miðar farnir úr miðasölukerfinu á tix.is en ekki er þar með sagt að svo margir áhorfendur skili sér á völlinn. Um það bil helmingur þessara miða er fyrir börn 16 ára og yngri sem fá að fara frítt á leikinn. Í stuttum pistli á vef KSÍ hvetur Vanda fólk til að styðja hið unga landslið Íslands sem mætir Liechtenstein í kvöld. Frá Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ: Styðjum ungt landslið karla í knattspyrnu til dáða í leik á móti Liechtenstein í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld kl. 18.45. A-landslið karla í knattspyrnu stendur frammi fyrir krefjandi verkefnum á miklum breytingatímum. Ég vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta á völlinn til að hvetja til dáða leikmenn Íslands, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu, og efla knattspyrnufólk sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar. Áfram Ísland! Vanda Sigurgeirsdóttir Formaður KSÍ Gríðarlega mikið er um forföll í íslenska landsliðshópnum. Ekki bara vegna meiðsla og leikbanna heldur sæta tvær skærustu stjörnur liðsins síðasta áratug lögreglurannsókn vegna kynferðisbrota. Ungir leikmenn munu því áfram fá tækifæri til að sýna sig og sanna, eins og hinn 18 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson gerði í síðasta landsleik og hinn 19 ára Andri Lucas Guðjohnsen gerði í síðasta landsleikjaglugga. Báðir hafa þeir nú náð að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Andri Lucas verður sennilega með í kvöld eftir að hafa misst af 1-1 jafnteflinu við Armeníu á föstudag vegna meiðsla. Ísak tekur hins vegar út leikbann. Birkir Bjarnason og Viðar Örn Kjartansson eru einu leikmennirnir yfir 26 ára aldri sem mögulegt er að spili í kvöld, og líklegt er að meðalaldur liðsins verði ansi lágur. Fyrir leik verða tvær af helstu hetjum íslenska landsliðsins síðustu ár, EM- og HM-fararnir Kári Árnason og Hannes Þór Halldórsson, heiðraðir. Leikur Íslands og Liechtenstein hefst eins og fyrr segir klukkan 18:45. Miðasala er á tix.is. HM 2022 í Katar Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Sjá meira
Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ voru nú um nónbil um 4.400 miðar farnir úr miðasölukerfinu á tix.is en ekki er þar með sagt að svo margir áhorfendur skili sér á völlinn. Um það bil helmingur þessara miða er fyrir börn 16 ára og yngri sem fá að fara frítt á leikinn. Í stuttum pistli á vef KSÍ hvetur Vanda fólk til að styðja hið unga landslið Íslands sem mætir Liechtenstein í kvöld. Frá Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ: Styðjum ungt landslið karla í knattspyrnu til dáða í leik á móti Liechtenstein í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld kl. 18.45. A-landslið karla í knattspyrnu stendur frammi fyrir krefjandi verkefnum á miklum breytingatímum. Ég vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta á völlinn til að hvetja til dáða leikmenn Íslands, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu, og efla knattspyrnufólk sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar. Áfram Ísland! Vanda Sigurgeirsdóttir Formaður KSÍ Gríðarlega mikið er um forföll í íslenska landsliðshópnum. Ekki bara vegna meiðsla og leikbanna heldur sæta tvær skærustu stjörnur liðsins síðasta áratug lögreglurannsókn vegna kynferðisbrota. Ungir leikmenn munu því áfram fá tækifæri til að sýna sig og sanna, eins og hinn 18 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson gerði í síðasta landsleik og hinn 19 ára Andri Lucas Guðjohnsen gerði í síðasta landsleikjaglugga. Báðir hafa þeir nú náð að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Andri Lucas verður sennilega með í kvöld eftir að hafa misst af 1-1 jafnteflinu við Armeníu á föstudag vegna meiðsla. Ísak tekur hins vegar út leikbann. Birkir Bjarnason og Viðar Örn Kjartansson eru einu leikmennirnir yfir 26 ára aldri sem mögulegt er að spili í kvöld, og líklegt er að meðalaldur liðsins verði ansi lágur. Fyrir leik verða tvær af helstu hetjum íslenska landsliðsins síðustu ár, EM- og HM-fararnir Kári Árnason og Hannes Þór Halldórsson, heiðraðir. Leikur Íslands og Liechtenstein hefst eins og fyrr segir klukkan 18:45. Miðasala er á tix.is.
Frá Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ: Styðjum ungt landslið karla í knattspyrnu til dáða í leik á móti Liechtenstein í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld kl. 18.45. A-landslið karla í knattspyrnu stendur frammi fyrir krefjandi verkefnum á miklum breytingatímum. Ég vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta á völlinn til að hvetja til dáða leikmenn Íslands, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu, og efla knattspyrnufólk sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar. Áfram Ísland! Vanda Sigurgeirsdóttir Formaður KSÍ
HM 2022 í Katar Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Sjá meira