Forsendur lífskjarasamningsins brostnar og formaður VR kennir stjórnvöldum um Árni Sæberg skrifar 20. september 2021 19:19 Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR. Vísir/Egill Forsendunefnd SA og ASÍ komst að þeirri niðurstöðu á fundi í dag að forsendur lífskjarasamningsins væru brostnar og því þurfi að samningsaðilar að endurskoða kjarasamninga sín á milli fyrir mánaðarmót.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í samtali við Vísi að ASÍ og SA hafi staðið við samninginn að öllu leyti. Forsendubresturinn sé því alfarið á ábyrgð stjórnvalda. Hann segir mörg mikilvæg atriði í samningnum hafa verið á könnu stjórnvalda en að þau hafi ekki náð í gegn fyrir þinglok. Hann nefnir til að mynda lög um húsaleigu. „Leiga er að hækka um fimm, tíu, fimmtán þúsund á mánuði. Húsaleigulögin áttu að verja fólk en þau náðu ekki í gegn,“ segir Ragnar Þór. Vinnumarkaður sé í uppnámi Í færslu á Facebook segir Ragnar Þór vanefndir stjórnvalda á lífskjarasamningnum koma vinnumarkaði í fullkomna óvissu og uppnám. Hann segir það ekki gott veganesti fyrir ríkisstjórnina inn í komandi kosningar. Málum haldið í gíslingu inni í ráðuneytum Ragnar Þór segir að stjórnvöld geti ekki borið fyrir sig áhrif heimsfaraldurs Covid-19 eða mótstöðu á þingi sem ástæðu þess að málin hafi dagað uppi. Þvert á móti segir hann reynslu sína af því að leiða húsaleigumálið benda til þess að fjármálaráðuneytið hafi gegngert tafið málið og skilað því of seint til þingsins. Því hafi ekki gefist tími til afgreiðslu þess í þinginu. „Það var sátt í starfshópi um húsaleigumál en það virðist vera lífsins ómögulegt að koma hlutum í gegnum þingið þegar Sjálfstæðisflokkurinn er annars vegar," segir Ragnar Þór. Hann segist þó ekki hafa sérstaklega horn í síðu Sjálfstæðisflokksins og að forsendubresturinn sé jafnt á ábyrgð allra ríkisstjórnarflokkanna. Vilji til að halda samninga Ragnar Þór segir að vilji sé innan Alþýðisambandsins að halda lífskjarasamninginn en að það gæti reynst erfitt enda verði engin stjórnvöld til að semja við. Ákveða þurfi hvort samningnum verði sagt upp fyrir klukkan fjögur þann 30. september. „Það er alveg ljós að það muni taka lengri tíma að mynda ríkisstjórn,“ segir hann.
Kjaramál Vinnumarkaður Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Sjá meira