Gengi hlutabréfa 18 félaga af 23 sem skráð eru á Aðalmarkað kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkaði í viðskiptum dagsins. Mest lækkaði gengi bréfa flugfélagsins Icelandair, eða um 3,4% í 101 milljóna króna veltu. Fyrir vikið stendur gengi bréfa félagsins nú í 1,93 krónum á hlut.

Alvotech og Skel fjárfestingafélag fylgdu fast á hæla Icelandair og lækkuðu um 3,39% og 3,38%. Reitir var eina félagið sem hækkaði gengi sitt í viðkiptum dagsins en bréf félagsins hækkuðu um 0,63% í 103 milljóna króna veltu.

Mest velta var með hlutabréf Arion banka, eða 948 milljónir króna. Gengi bankans lækkaði um 2,42% í viðskiptum dagsins.

OMXI10 úrvalsvísitalan lækkaði um 1,89% í viðskiptum dagsins og stendur í kjölfarið í 2.533,61 stigi.