Fótbolti

Pirraðir út í Pogba og íhuga að rifta samningi hans

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paul Pogba er byrjaður að æfa með Juventus og var í hóp hjá liðinu í síðasta deildarleik.
Paul Pogba er byrjaður að æfa með Juventus og var í hóp hjá liðinu í síðasta deildarleik. getty/Daniele Badolato

Forráðamenn Juventus eru orðnir afar pirraðir á Paul Pogba og íhuga að rifta samningi hans við félagið.

Pogba kom til Juventus frá Manchester United á frjálsri sölu í sumar. Hann hefur hins vegar ekkert spilað í vetur vegna hnémeiðsla.

Juventus-menn eru pirraðir yfir því að Pogba hafi ekki farið í aðgerð á hné því hann taldi að það ógnaði þátttöku hans á HM í Katar, þar sem hann spilaði svo ekki. Þá er lítil ánægja með hvernig Pogba ber sig að á samfélagsmiðlum. Hann er talinn óábyrgur og farinn að minna meira á áhrifavald en fótboltamann.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum eru forráðamenn Juventus það pirraðir á Pogba að þeir íhuga að rifta samningi Frakkans eftir tímabilið. Talið er að hann gæti þá haldið til Bandaríkjanna að spila.

Pogba er einn launahæsti leikmaður Juventus en talið er að hann fái rúmlega sjö milljónir punda á ári í laun hjá félaginu. Bónusar eru ekki inni í þeirri jöfnu þannig að Pogba þénar í raun meira en sjö milljónirnar.

Pogba lék áður með Juventus á árunum 2012-16 og varð þá fjórum sinnum ítalskur meistari með liðinu og hjálpaði því að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×