Sigurbjörg gefur kost á sér áfram í oddvitasætið

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, hyggst gefa kost á sér áfram í oddvitasæti flokksins í sveitastjórnarkosningunum í vor.

Í framboðstilkynningu segir Sigurbjörg Pírata hafa átt mjög árangursríkt kjörtímabil þrátt fyrir að vera í minnihluta og komið ýmsum góðum málum í verk.

„Í öllum mínum störfum hef ég lagt áherslu á aukið íbúasamráð, gegnsæi, hugað að áhrifum á loftslagið í allri ákvarðanatöku og staðið vörð um mannréttindi og persónuvernd,“ er haft eftir Sigurbjörgu í tilkynningunni.

Fyrir tilstuðlan Pírata í Kópavogi hafi bæjarstjórn m.a. innleitt reglur um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa, hafið að birta fylgigögn með fundargerðum, bætt aðgengi að ókyngreindum búningsklefum í sundlaugum og samþykkt að kolefnisjafna allar ferðir starfsfólks bæjarins á vinnutíma.

Sigurbjörg telur það vera mjög raunhæfan möguleika að Píratar komi að myndun meirihluta í Kópavogi á næsta kjörtímabili þar sem þeir muni hafa enn meiri áhrif, að sögn hennar.

Stærstu áskoranir komandi ára eru loftslagsmálin og þar spila skipulag og samgöngur stóran sess. Ég hef mikinn metnað fyrir því að Kópavogur verði leiðandi í málaflokknum og ég tel Pírata hafa á að skipa bestu hugmyndafræðinni til þess að koma okkur þangað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert