Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Árni Sæberg skrifar 21. júní 2022 14:27 Hæstiréttur Íslands mun taka mál Sjóvar og hásetans fyrir. Vísir/Vilhelm Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014.
Málavextir voru þeir að hásetinn slasaðist um borð í frystitogara þegar trollpoki sem hann stóð á var hífður upp með þeim afleiðingum að hann kastaðist á járnsúlu á dekki skipsins og slasaðist á vinstra hné. Hann þurfti að hætta sjómennsku eftir slysið. Hásetinn leitaði, í samráði við Sjóvá, mats læknis og lögfræðings á afleiðingum slyssins og var varanlegur miski hans metinn fimm stig og varanleg örorka tíu prósent. Matsgerð þessi sem og að bótaskylda Sjóvár voru óumdeildar og sömdu hásetinn og Sjóvá um bótagreiðslur. Lögmaður hásetans undirritaði bótayfirlit, sem bar yfirskriftina fullnaðaruppgjör, fyrir hönd hásetans en gerði nokkra fyrirvara, meðal annars sem lutu að rétti hans til frekari bóta ef varanleg örorka eða miski hans yrði síðar metinn hærri en samkvæmt matsgerð. Örorkunefnd mat heilsu hásetans verri Svo fór að heilsu hásetans hrakaði og óskaði hann álits örorkunefndar sem komst að þeirri niðurstöðu árið 2019 að varanlegur miski hans væri fimmtán stig og varanlega örorka 25 prósent. Þá beindi hann kröfu að Sjóvá til að fá eftirstöðva bóta miðað við nýja matsgerð greiddar en Sjóvá synjaði kröfu hans með vísan til vátryggingarskilmála sem kveða á um að örorkumat skuli framkvæmt innan þriggja ára frá slysdegi. Fyrirvarinn talinn trompa ákvæði skilmála Hásetinn höfðaði þá dómsmál á hendur Sjóvá. Með dómi héraðsdóms, sem staðfestur var af Landsrétti, var Sjóvá dæmt til að greiða hásetanum bætur miðað við hið nýrra örorkumat vegna þess að hann hafði gert fyrirvara þegar hann undirritaði bótayfirlit. Þá sagði í dóminum að Sjóvá hefði lengst af ekki borið fyrir sig ákvæði í tryggingarskilmálum um tímafrest við þær aðstæður sem uppi væru í málinu. Sjóvá hefði engum andmælum hreyft gegn fyrirvaranum eða gildissviði hans, né gert sérstakan áskilnað um að nýtt mat yrði að leggja fram innan þriggja ára frá slysdegi í samræmi við ákvæði tryggingarskilmálanna. Yrði Sjóvá því látin bera hallann af því að hafa ekki skilmerkilega áréttað þann áskilnað. Sjóvá taldi dóm Landsréttar í andstöðu við dómafordæmi Sjóvá óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar með vísan til þess að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur að efni til þar sem dómurinn sé í andstöðu við dómafordæmi Hæstaréttar. Þá byggir Sjóvá á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi þar sem við uppgjör vátryggingarbóta reyni reglulega á samhljóða ákvæði í vátryggingarskilmálum auk þess sem dómur í málinu gæti haft fordæmisgildi um túlkun fyrirvara við bótauppgjör. Þrír dómarar Hæstaréttar komust að þeirri niðurstöðu að hæstaréttardómur í málinu kunni að hafa fordæmisgildi meðal annars um skýringu vátryggingarsamnings og þýðingu fyrirvara við bótauppgjör þannig að fullnægt sé skilyrðum ákvæðum laga um meðferð einkamála um áfryjun til Hæstaréttar. Því var beiðni um áfrýjunarleyfi samþykkt. Ákvörðun Hæstaréttar má lesa hér og dóm Landsréttar má lesa hér.
Dómsmál Vinnuslys Tryggingar Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira