„Hef ekki náð hátindi míns ferils“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. júní 2022 10:00 Aron Dagur Pálsson er gengin til liðs við Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals. Valur Handbolti Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson skrifaði undir samning við Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals í vikunni, en hann kemur til liðsins frá Noregsmeisturum Elverum. Aron segir nokkur tilboð hafa legið á borðinu, en honum hafi þótt Valur vera með mest spennandi verkefnið í gangi. „Þetta var í rauninni þannig séð ekkert erfið ákvörðun,“ sagði Aron Dagur í samtali við Vísi. „Ég fór þarna til Eskilstuna Guif eftir tvö ár í Alingsås og það fór ekki nákvæmlega eins og maður vildi. Ég skipti svo yfir til Elverum í Noregi á miðju tímabili sem var bara frábært skref fyrir mig. Þar fékk ég að kynnast liði sem komst í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni og þetta er bara yfirburðarlið í Noregi. Ég myndi telja það mikið heillaskref þó að maður hefði náttúrulega alltaf viljað spila meira, en þetta var eitthvað sem ég lærði alveg helling á.“ „Eftir það kom eitthvað af áhuga, bæði frá norðurlöndunum og annars staðar, en handboltalega séð þá fannst mér Valur eiginlega bara langmest spennandi. Það er fyrst og fremst það sem varð til þess að ég tók þessa ákvörðun.“ Aron Dagur er enn aðeins 25 ára gamall og því ekki beint á þeim hefðbundna aldri sem leikmenn eru á þegar þeir koma heim úr atvinnumennsku. Hann segir að hann eigi enn nóg eftir af ferlinum og telur sig vera að taka rétt skref með því að skrifa undir hjá Val. „Eins og þú segir þá er ég ekki á þeim aldri sem flestir eru á þegar þeir koma heim og eru þá kannski á lokametrum ferilsins. En ég er að mínu mati ekki búinn að ná hátindi míns ferils þannig ég er bara drulluspenntur að koma heim og ég taldi mig bara geta bætt mig mest hjá Val svona handboltalega séð af þeim kostum sem voru í boði. Mér finnst það segja ýmislegt um verkefnið sem Valur er með í gangi.“ Spenntur að vinna með Snorra og er vanur að spila hratt Snorri Steinn Guðjónsson hefur gert frábæra hluti með Val.Vísir/Hulda Margrét Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, hefur gert Val að einu besta liði síðari tíma í íslenskum handbolta og Aron Dagur kveðst spenntur að fá að vinna undir hans stjórn. „Allt sem Snorri hefur sýnt hingað til sem þjálfari hefur verið alveg frábært þannig að þetta er mjög spennandi. Allt sem maður hefur heyrt af honum hefur verið frábært þannig maður er bara mjög spenntur að kynnast honum betur sem þjálfara og vonandi getur hann gert mig að betri leikmanni líka og látið mig gera Val að betra liði.“ Valsmenn eru þekktir fyrir mjög hraðan og beinskeyttan handbolta þar sem er lögð mikil áhersla á að keyra í bakið á andstæðingnum. Aron segir þetta ekki ósvipaðan stíl og hann er vanur og telur sig því geta fallið vel inn í hópinn. „Ég var í besta liðinu í Svíþjóð allavega fyrra árið mitt úti þar sem þeir spiluðu í rauninni ekkert ósvipað og Valur er að gera. Þeir lögðu mikla áherslu á fyrsta tempó hraðaupphlaup og að hlaupa alltaf hraða miðju. Svo er Elverum auðvitað þekkt fyrir þetta líka þannig ég hugsa þangað til annað kemur í ljós að þetta verði ekkert glænýir hlutir fyrir mér. Þannig ég held að ég muni bara passa mjög vel inn í þetta allt saman.“ „Ættu að reyna að stefna að því að komast lengra í Evrópudeildinni“ Undanfarin misseri hafa Valsmenn unnið alla þá titla sem í boði eru í íslenskum handbolta. Liðið hefur orðið Íslandsmeistari seinustu tvö tímabil og þá eru Valsmenn einnig ríkjandi bikar- og deildarmeistarar. Þrátt fyrir að hafa ekki enn tekið samtalið við Valsmenn segist Aron þó vera viss um að stefnan sé sett hátt í Evrópukeppni á næsta tímabili. „Þetta er svo sem ekkert sem ég hef rætt beint við þá. En miðað við mín kynni af því að hafa horft á Val spila og bera það svo saman við eins og bestu liðin í Svíþjóð og Noregi, fyrir utan kannski Elverum sem sker sig aðeins úr, þá sé ég ekki af hverju Valur ætti ekki að geta stefnt á að gera einhverja hluti í Evrópukeppnum.“ „Þeir ættu að vera að reyna að stefna að því að komast lengra í Evrópudeildinni og allt það, en auðvitað fer það að einhverju leyti eftir því hvaða drætti maður fær. En auðvitað væri þetta eitt af þeim skrefum sem væri ótrúlega gaman að taka þátt í ef eitthvað svona ævintýri kemur upp.“ Valsmenn gáfu þýska liðinu Lemgo ekkert eftir í Evrópudeildinni á seinasta tímabili.Vísir/Vilhelm „En þetta fer rosalega eftir því hvaða lið maður fær en þeir sýndu það bara í fyrra að með smá heppni þá hefðu þeir alveg getað slegið Lemgo út. Eins og ég segi þá verður bara mjög spennandi að sjá hvernig það allt saman fer,“ sagði Aron Dagur að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Olís-deild karla Valur Tengdar fréttir Aron Dagur semur við Val Stórar fréttir voru að berast frá Hlíðarenda fyrir skömmu þegar Valsarar tilkynntu nýjasta liðsstyrkinn fyrir komandi leiktímabil, Aron Dag Pálsson. 20. júní 2022 22:00 Aron Dagur og Orri Freyr meistarar í Noregi Elverum varð í kvöld norskur meistari í handbolta karla en liðið tryggði sér titilinn með 34-28 sigri sínum gegn Arendal. 11. júní 2022 19:50 Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi Sjá meira
„Þetta var í rauninni þannig séð ekkert erfið ákvörðun,“ sagði Aron Dagur í samtali við Vísi. „Ég fór þarna til Eskilstuna Guif eftir tvö ár í Alingsås og það fór ekki nákvæmlega eins og maður vildi. Ég skipti svo yfir til Elverum í Noregi á miðju tímabili sem var bara frábært skref fyrir mig. Þar fékk ég að kynnast liði sem komst í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni og þetta er bara yfirburðarlið í Noregi. Ég myndi telja það mikið heillaskref þó að maður hefði náttúrulega alltaf viljað spila meira, en þetta var eitthvað sem ég lærði alveg helling á.“ „Eftir það kom eitthvað af áhuga, bæði frá norðurlöndunum og annars staðar, en handboltalega séð þá fannst mér Valur eiginlega bara langmest spennandi. Það er fyrst og fremst það sem varð til þess að ég tók þessa ákvörðun.“ Aron Dagur er enn aðeins 25 ára gamall og því ekki beint á þeim hefðbundna aldri sem leikmenn eru á þegar þeir koma heim úr atvinnumennsku. Hann segir að hann eigi enn nóg eftir af ferlinum og telur sig vera að taka rétt skref með því að skrifa undir hjá Val. „Eins og þú segir þá er ég ekki á þeim aldri sem flestir eru á þegar þeir koma heim og eru þá kannski á lokametrum ferilsins. En ég er að mínu mati ekki búinn að ná hátindi míns ferils þannig ég er bara drulluspenntur að koma heim og ég taldi mig bara geta bætt mig mest hjá Val svona handboltalega séð af þeim kostum sem voru í boði. Mér finnst það segja ýmislegt um verkefnið sem Valur er með í gangi.“ Spenntur að vinna með Snorra og er vanur að spila hratt Snorri Steinn Guðjónsson hefur gert frábæra hluti með Val.Vísir/Hulda Margrét Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, hefur gert Val að einu besta liði síðari tíma í íslenskum handbolta og Aron Dagur kveðst spenntur að fá að vinna undir hans stjórn. „Allt sem Snorri hefur sýnt hingað til sem þjálfari hefur verið alveg frábært þannig að þetta er mjög spennandi. Allt sem maður hefur heyrt af honum hefur verið frábært þannig maður er bara mjög spenntur að kynnast honum betur sem þjálfara og vonandi getur hann gert mig að betri leikmanni líka og látið mig gera Val að betra liði.“ Valsmenn eru þekktir fyrir mjög hraðan og beinskeyttan handbolta þar sem er lögð mikil áhersla á að keyra í bakið á andstæðingnum. Aron segir þetta ekki ósvipaðan stíl og hann er vanur og telur sig því geta fallið vel inn í hópinn. „Ég var í besta liðinu í Svíþjóð allavega fyrra árið mitt úti þar sem þeir spiluðu í rauninni ekkert ósvipað og Valur er að gera. Þeir lögðu mikla áherslu á fyrsta tempó hraðaupphlaup og að hlaupa alltaf hraða miðju. Svo er Elverum auðvitað þekkt fyrir þetta líka þannig ég hugsa þangað til annað kemur í ljós að þetta verði ekkert glænýir hlutir fyrir mér. Þannig ég held að ég muni bara passa mjög vel inn í þetta allt saman.“ „Ættu að reyna að stefna að því að komast lengra í Evrópudeildinni“ Undanfarin misseri hafa Valsmenn unnið alla þá titla sem í boði eru í íslenskum handbolta. Liðið hefur orðið Íslandsmeistari seinustu tvö tímabil og þá eru Valsmenn einnig ríkjandi bikar- og deildarmeistarar. Þrátt fyrir að hafa ekki enn tekið samtalið við Valsmenn segist Aron þó vera viss um að stefnan sé sett hátt í Evrópukeppni á næsta tímabili. „Þetta er svo sem ekkert sem ég hef rætt beint við þá. En miðað við mín kynni af því að hafa horft á Val spila og bera það svo saman við eins og bestu liðin í Svíþjóð og Noregi, fyrir utan kannski Elverum sem sker sig aðeins úr, þá sé ég ekki af hverju Valur ætti ekki að geta stefnt á að gera einhverja hluti í Evrópukeppnum.“ „Þeir ættu að vera að reyna að stefna að því að komast lengra í Evrópudeildinni og allt það, en auðvitað fer það að einhverju leyti eftir því hvaða drætti maður fær. En auðvitað væri þetta eitt af þeim skrefum sem væri ótrúlega gaman að taka þátt í ef eitthvað svona ævintýri kemur upp.“ Valsmenn gáfu þýska liðinu Lemgo ekkert eftir í Evrópudeildinni á seinasta tímabili.Vísir/Vilhelm „En þetta fer rosalega eftir því hvaða lið maður fær en þeir sýndu það bara í fyrra að með smá heppni þá hefðu þeir alveg getað slegið Lemgo út. Eins og ég segi þá verður bara mjög spennandi að sjá hvernig það allt saman fer,“ sagði Aron Dagur að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild karla Valur Tengdar fréttir Aron Dagur semur við Val Stórar fréttir voru að berast frá Hlíðarenda fyrir skömmu þegar Valsarar tilkynntu nýjasta liðsstyrkinn fyrir komandi leiktímabil, Aron Dag Pálsson. 20. júní 2022 22:00 Aron Dagur og Orri Freyr meistarar í Noregi Elverum varð í kvöld norskur meistari í handbolta karla en liðið tryggði sér titilinn með 34-28 sigri sínum gegn Arendal. 11. júní 2022 19:50 Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi Sjá meira
Aron Dagur semur við Val Stórar fréttir voru að berast frá Hlíðarenda fyrir skömmu þegar Valsarar tilkynntu nýjasta liðsstyrkinn fyrir komandi leiktímabil, Aron Dag Pálsson. 20. júní 2022 22:00
Aron Dagur og Orri Freyr meistarar í Noregi Elverum varð í kvöld norskur meistari í handbolta karla en liðið tryggði sér titilinn með 34-28 sigri sínum gegn Arendal. 11. júní 2022 19:50
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti