Samstjórn allra flokka tekur við á Akureyri Heimir Már Pétursson skrifar 22. september 2020 12:27 Akureyri Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Ný samstjórn allra flokka verður við stjórn Akureyrarbæjar eftir samkomulag meiri- og minnihluta þar um sem greint var frá í hádeginu. Forseti bæjarstjórnar segir nýja kjarasamninga og kórónufaraldurinn hafa haft mikil áhrif á fjárhagsstöðu bæjarins. Ellefu bæjarfulltrúar sitja í bæjarstjórn Akureyrar. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2018 mynduðu Framsóknarflokkur, Samfylking og L-list meirihluta í bæjarstjórn með tvo bæjarfulltrúa hver flokkur. En Sjálfstæðisflokkur með þrjá bæjarfulltrúa, Vinstri græn með einn og Miðflokkurinn með einn voru í minnihluta. Halla Björk Reynisdóttir oddviti L-listans sem myndaði meirihluta með Samfylkingu og Framsóknarflokki eftir kosningar 2018 segir mikilvægt að allir flokkar komi að lausn mála út kjörtímabilið í bæjarstjórn Akureyrar.Mynd/Akureyrarbær Fjárhagsstaða Akureyrarbæjar hefur verið erfið undanfarin misseri og hafa tekjur dregist saman og útgjöld aukist á þessu ári vegna kórónufaraldursins. Þannig var 1,3 milljarða halli á rekstri bæjarins á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Halla Björk Reynisdóttir oddviti L-listans og forseti bæjarstjórnar segir nýgerða kjarasamninga einnig hafa þyngt mjög rekstur bæjarins. „Við erum svo heppin hér á Akureyri að það er áralöng hefð fyrir góðu samstarfi á milli meiri- og minnihluta. Núna hefur skapast sá jarðvegur og traust á milli aðila að við teljum, á þessum fordæmalausu tímum þar sem við erum að takast á við stór verkefni og taka erfiðar ákvarðanir sem hafa áhrif til framtíðar, að það sé mikilvægt að um það náist breið samstaða,“ segir Halla Björk. Fráfarandi meirihluti hafi treyst sér í verkefnin en mikilvægt væri nú að ná breiðri samstöðu um málin. Flokkar sem áður voru í minnihluta muni taka að sér formennsku á ýmsum stöðum. Ellefu bæjarfulltrúar allra flokka fara nú sameiginlega með stjórn Akureyrarbæjar.Mynd/Akureyrarbær „Minnihlutinn mun taka við formennsku í skipulagsráði, frístundaráði, stjórn Menningarfélags Akureyrar og vist- og fallorku,“ segir Halla Björk. Bærinn hafi þurft að grípa til aðgerða til að koma til móts við vinnustaði í bænum og samfélagið í heild. „Og það hefur kallað á fjárútlát og breytta starfshætti. Núna erum við að breyta okkar starfsháttum í bæjarstjórn ásamt starfsfólki bæjarins.“ Tekjur hafa væntanlega dregist saman á móti auknum útgjööldum eða hvað? „Já, tekjur hafa dregist verulega saman. Og við erum að takast á við nýja kjarasamninga sem eru okkur nokkuð þungir,“ segir Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar á Akureyri.
Akureyri Sveitarstjórnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira