Sennilega gróðureldur, ekki ný sprunga

Þyrluflugmaður Norðurflugs, tók mynd úr lofti á þriðja tímanum eftir …
Þyrluflugmaður Norðurflugs, tók mynd úr lofti á þriðja tímanum eftir hádegi í dag þar sem mátti sjá reykmökk og svarta rönd við Hraunsanda, austur af Grindavík. Ljósmynd/Lukas Flatchart

Aðgerðastjórn almannavarna rannsakaði í dag hvort ný sprunga hefði opnast í eldgosinu við Sundhnúkagíga, eftir hafa fengið ábendingar um slíkt. Svo reyndist ekki hafa gerst, heldur var þarna líklega um gróðureld að ræða að sögn Veðurstofu.

Á ljósmynd sem Lucas Flatchart, þyrluflugmaður Norðurflugs, tók úr lofti á þriðja tímanum eftir hádegi í dag mátti sjá reykmökk og svarta rönd við Hraunsanda, austur af Grindavík.

Þegar mbl.is hafði samband við Veðurstofu var aðgerðarstjórn fengin til þess að kanna myndina.

„Þetta lítur í rauninni út fyrir að vera annað hvort gróðureldur eða að það sé einhver dæld sem hraunið hefur runnið í,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúrvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

„Ef það væri einhver sprunga væri meira búið að gerast.“

Græna línan er þar sem reykmökkurinn er, appelsínugulu línurnar eru …
Græna línan er þar sem reykmökkurinn er, appelsínugulu línurnar eru varnargarðarnir um Grindavík. Kort/Map.is

Landris virðist farið að hægja á sér

Land rís enn undir Svartsengi, en landris er afar óvenjulegt undir yfirstandandi gosi.

Gígurinn í eldgosinu við Sundhnúkagíga er enn stöðug, eins og sjá má á vefmyndavélum mbl.is.

Spurð út í hraða landrissins svarar Lovísa: „Það lítur út fyrir að það sé aðeins farið að hægja á því en það er of snemmt að segja til hvort þetta sé raunverulegt merki eða ekki.“

„Sérfræðingar koma í hús á morgun og þá er farið yfir þetta.“

Landrismælingar við Svartsengi frá því í febrúar.
Landrismælingar við Svartsengi frá því í febrúar. Graf/Háskóli Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert