„Mér líður ekki vel“ Atli Arason skrifar 22. október 2021 23:13 Logi Gunnarsson og Benedikt Guðmundsson fanga VÍS bikarnum í síðasta mánuði. Vísir/Hulda Margrét Þrátt fyrir stórsigur Njarðvíkur á Valsmönnum í kvöld, þá var svolítið dökkt yfir heimamönnum en leikurinn endaði ekki vel fyrir herra Njarðvík, Loga Gunnarsson, sem neyddist til að fara meiddur af velli í fjórða leikhluta. „
Ég fékk högg á hnéð og það var óþægilegt. Ég veit svo sem ekkert hvað þetta er en ég stóð fast í löppina og hann [Richotti] lenti á mér með fullum þunga. Hann sagðist hafa heyrt eitthvað popp í hnénu á mér en ég heyrði það ekki. Mér finnst ég vera svolítið laus í hnénu en ég veit ekki alveg, ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn strax en mér líður ekki vel.“ Njarðvík vann 26 stiga sigur á Val, þar sem nánast allt gekk upp hjá heimamönnum bæði sóknar og varnarlega. „Við spilum mikinn liðsbolta og erum miklir liðsfélagar. Við héldum bara áfram að láta boltann ganga þó við vorum stundum að fá frí skot og vorum að klikka. Við bara stoppuðum aldrei og héldum áfram að láta boltann flæða. Við gáfum aukasendingarnar aftur og aftur þangað til við fórum að hitta. Svo er vörnin okkar frábær og er búinn að vera það alltaf. Við erum góðir að færa okkur og spila sem lið. Það er oft þannig þegar þú finnur eitthvað ákveðið traust á milli leikmanna þá verður vörnin svo eðlileg og sóknin kemur einhvern veginn með því. Maður beið bara eftir því að boltinn fór ofan í og það var svo flugeldasýning þegar hann fór loksins ofan í.“ „Ég veit það er erfitt fyrir lið að koma hingað og spila við okkur þegar við erum í þessum gír en þeir eru mjög flottir varnarlega líka og voru það eiginlega allan leikinn en við fundum glufur í endann og mér fannst við spila vel út úr þeim möguleikum sem við höfðum í síðasta fjórðungnum.“ Það átti sér stað áhugavert atvik í öðrum leikhluta þegar Njarðvíkingar tapa boltanum á vallarhelming Vals. Valur keyrir í kjölfarið hratt á Njarðvíkinga en Logi er fyrstur að átta sig á hlutunum og hleypur hraðast allra á vellinum til að koma sér til baka og nær einhvern veginn að koma sér inn í loka sendingu Vals og koma í veg fyrir að gestirnir skoruðu auðvelda körfu. Það var ekki að sjá á því augnabliki að þarna var á ferðinni elsti maður vallarins sem er nýlega búinn að fagna fertugsafmæli sínu. „Ég passa mig á því að æfa mig vel og geri þetta aukalega sem þarf að gera sem þarf til að halda sér í þessari sterku deild. Ég á það svo til að geta náð í hraðann af og til og nýti það þegar ég þarf,“ svaraði Logi með smá bros á vör þegar hann var spurður út í atvikið. Það er stutt á milli leikja hjá Njarðvík, en næsti leikur þeirra er eftir einungis þrjá daga en þeim leik var flýtt vegna verkefna Benna þjálfara með kvennalandsliðinu í næsta mánuði. Sá leikur kemur líklega of snemma fyrir Loga vegna meiðslanna í kvöld en hann ætlar samt að vera bjartsýnn. „Ég veit ekki, ég ætla að sjá til hvað kemur út úr skoðunum á morgun. Við sjáum bara til, ég er mjög jákvæður maður þannig ég vona bara það besta,“ sagði Logi Gunnarson að lokum.
Subway-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Fleiri fréttir Í beinni: Höttur - Tindastóll | Barist um afar mikilvæg tvö stig Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Djokovic segir þjálfaranum upp Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Sjá meira