Sóttvarnalæknir lagði til 20 manna samkomubann áður en smitum fór fjölgandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa 1. desember 2020 12:30 Jólaverslunin er hafin og lagði sóttvarnalæknir til við ráðherra í minnisblaði í síðustu viku að rýmkað yrði fyrir starfsemi annarra verslana en matvöru- og lyfjaverslana í tengslum við samkomutakmarkanir. Vísir/Vilhelm Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að á meðan kórónuveirufaraldurinn sé í vexti, líkt og nú er, sé ekki tilefni til þess að slaka á samkomutakmörkunum. Það sé of mikið að tíu til tuttugu smit séu að greinast á hverjum degi.
Þetta kom fram í viðtali fréttastofu við Svandísi að loknum ríkisstjórnarfundi í ráðherrabústaðnum upp úr hádegi. Átján manns greindust með veiruna innanlands í gær og voru sjö þeirra utan sóttkvíar. Óbreyttar samkomutakmarkanir verða í gildi til og með 9. desember í samræmi við tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, sem hann skilaði til hennar um helgina eftir að smitum fór fjölgandi. Þórólfur hafði um miðja síðustu viku skilað öðrum tillögum sem fólu í sér tilslakanir og var Svandís spurð út í það í hverju þær fólust. „Það var lagt til að fjölga upp í 20 manns, það var tiltekin rýmkun á annarri verslun en matvöru- og lyfjaverslunum, það voru rýmkanir tengdar íþróttum og sundlaugum og svo framvegis,“ sagði ráðherra og bætti við að þetta minnisblað Þórólfs yrði að finna í gögnum sem fjölmiðlar fengju í hendur síðar í dag. Ljóst er að fjölmarga landsmenn er farið að lengja eftir því að sundlaugar og líkamsræktarstövðar opni á ný. Aðspurð hvort einhverjar hugmyndir hefðu verið á borðinu með einhverjar tilslakanir í slíkri starfsemi vísaði Svandís í það að ekki væri tilefni til að fara í tilslakanir á meðan faraldurinn væri í vexti. „Við auðvitað höldum áfram að fylgjast með á hverjum degi. Það voru átján í morgun og þar af ellefu í sóttkví þannig að við sjáum að við erum enn að glíma við stök smit út í samfélaginu sem bendir til þess að veiran er enn á ferðinni. Við vitum af okkar reynslu og annarra þjóða að ef við slökum of hratt á þá nær faraldurinn að skella á með ennþá meiri þunga og það viljum við ekki sjá og allra síst á þessum árstíma,“ sagði Svandís. Áframhaldandi takmarkanir gilda aðeins í viku og heyrir það til undantekninga að reglugerð ráðherra í þessum efnum gildi ekki í tvær til þrjár vikur í senn. Svandís sagði að þótt hefði rétt að framlengja reglurnar í þetta stuttan að þessu sinni, ekki síst vegna þess að sé jólamánuðurinn. „Og við myndum gjarnan vilja sjá að við gætum gert einhverjar tilslakanir þannig að við þurfum bara að fylgjast mjög vel með á næstu dögum. Svo er líka til mjög mikils að vinna ef við horfum á möguleika á bóluefni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs þannig að við myndum auðvitað helst vilja að staðan væri þannig að við værum með fulla stjórn á faraldrinum þegar þar að kemur og við hefðum ekki misst fólk í veikindi,“ sagði Svandís. Einnig var rætt við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Hún sagði samstöðu hafa verið innan ríkisstjórnarinnar um áframhaldandi sóttvarnaráðstafanir. Sagði Katrín að það lægi fyrir að veiran gæti smitast með það miklum hraða að örfá smit á dag gætu orðið að mörgum smitum mjög hratt. Viðtalið við Katrínu má sjá í heild í spilaranum hér fyrir neðan og viðtalið við Svandísi í spilaranum ofar í fréttinni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Erlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira