Collier um hálfleiksræðu Rúnars Inga: „Hann lét okkur heyra það“ Atli Arason skrifar 1. desember 2021 23:00 Rúnar Ingi beinir einhverjum vel völdum orðum að Aliyah Collier Bára Dröfn Aliyah Collier var enn eina ferðina stigahæst í liði Njarðvíkur, í þetta sinn með 18 stig í sigri á erkifjendunum í Grindavík. „
Þetta var mjög góður sigur. Við erum að byrja aðra umferðina frekar vel og við erum búnar að vera í fínum takt, við erum að finna hvora aðra vel og þá gerast góðir hlutir,“ sagði Collier í viðtali við Vísi eftir leik. Collier nefnir að góð frammistaða og samleikur liðsins í síðari hálfleik hafi skilað sigrinum í kvöld. „Liðsframmistaða, við komum út í fyrri hálfleik og vorum að klikka á nokkrum lykilskotum. Í síðari hálfleik þá fórum við að spila meira sem lið. Við vorum að tala betur saman, ná stoppum og finna leikmenn í opnu svæðunum.“ Njarðvík var 5 stigum yfir í hálfleik, 32-27, en þrátt fyrir það var Rúnar Ingi, þjálfari Njarðvíkur, ekki sáttur. Collier segir að hálfleiksræða Rúnars hafi kveikt í liðinu fyrir síðari hálfleikinn. „Hann eiginlega lét okkur heyra það,“ sagði Collier og hló áður en hún hélt áfram, „hann vildi betri varnarleik og fá fleiri stopp. Ég held að við höfum móttekið þau skilaboð og komum betri út í síðari hálfleik og gerðum það sem við erum góðar í.“ Ásamt því að gera 18 stig þá var Collier með sex stolna bolta í vörninni en Njarðvík var alls með 7 stolna bolta í kvöld. Collier virtist ekki alveg vera búinn að átta sig á því þegar hún var spurð út í alla stolnu boltana sína. „Ég elska að spila í Njarðvík. Það er ágætt að ná 6 stolnum boltum,“ sagði Collier með stórt brös á vör, „varnarleikur er minn aðal fókus, ég hreyki mér af góðum varnarleik,“ svaraði Collier aðspurð af því hvort hún væri ekki að finna sig vel í Njarðvík þar sem hún er ítrekað að skila góðum tölum á tölfræðiblaðið. Collier neyddist til að fara af leikvelli undir lok fyrri hálfleiks þegar höfuð hennar lenti frekar harkalega í parketinu eftir árekstur við Robbi Ryan, leikmann Grindavíkur. „Ég fékk þungt högg og fékk mikinn höfuðverk í kjölfarið. Ég varð bara að harka af mér sem ég gerði og kom aftur inn í liðið og við sóttum sigurinn, mér líður bara nokkuð vel núna.“ Næsti leikur Njarðvíkur er gegn Íslandsmeisturum Vals. Collier er staðráðin í því að hefna fyrir sigurinn sem Valur náði í Ljónagryfjunni með því að vinna Valskonur á Hlíðarenda. „Við eigum harma að hefna gegn Val. Þær komu hingað í fyrstu umferðinni og spiluðu vel. Þær eru með gott lið og frábæra leikmenn. Það verður erfiður leikur en ég held að við munum enda ofan á, ég hef mikla trú á liðsfélögum mínum og þjálfurunum,“ sagði Aliyah Collier, leikmaður Njarðvíkur, full af sjálfstrausti.
Subway-deild kvenna UMF Njarðvík Körfubolti Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Leik lokið: Njarðvík - Grindavík 71-54 | Heimakonur halda toppsætinu Njarðvík heldur toppsæti Subway-deildar kvenna í körfubolta þökk sé stórsigri á nágrönnum sínum í Grindavík, lokatölur 71-54 í kvöld. 1. desember 2021 21:50 Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira
Leik lokið: Njarðvík - Grindavík 71-54 | Heimakonur halda toppsætinu Njarðvík heldur toppsæti Subway-deildar kvenna í körfubolta þökk sé stórsigri á nágrönnum sínum í Grindavík, lokatölur 71-54 í kvöld. 1. desember 2021 21:50