Segir stöðuna hjá Landhelgisgæslunni grafalvarlega Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 19. nóvember 2020 18:51
Svo gæti farið að engin björgunarþyrla verði starfhæf hjá Landhelgisgæslunni um miðja næstu viku ef ekki næst að semja í kjaradeilu hluta flugvirkja Gæslunnar. Þar með yrði hvorki hægt að sinna sjúkraflugi á sjó og landi né því eftirliti sem þyrlur Landhelgisgæslunnar sinna. Landhelgisgæslan hefur á að skipa þrjár þyrlur en aðeins ein þyrla hefur verið í notkun frá því að verkfall flugvirkja Gæslunnar skall á. Önnur þyrla Gæslunnar var farin í viðhald þegar verkfallið hófst og er hún því ekki tiltæk. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir stöðuna grafalvarlega. Leysa þurfi kjaradeilur flugvirkja Gæslunnar svo að hægt verði að sinna áfram sjúkraflugi.Vísir/Sigurjón „Staðan er grafalvarleg og hefur sjálfsagt aldrei verið jafn alvarleg í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Þetta hefur þær afleiðingar að það er enginn tiltækur til að fara út á sjó né inn á land í bráðatilfellum. Við stöndum hér alein í miðju Atlantshafinu í skammdegi og með Covid yfir okkur og getum í raun enga björg okkur veitt,“ sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ótímabundið verkfall flugvirkja hófst 6. nóvember síðastliðinn en samningar hafa verið lausir frá 31. desember 2019. Verkfallið nær til allra flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni sem sinna ekki neyðarþjónustu. Hann segir mikilvægt að kjaradeilurnar verði leystar sem fyrst. „Það er algerlega óviðunandi að hafa ekki lágmarksbjörgunarþjónustu hér í þessu landi og það er eiginlega alveg sama með hvaða leiðum það er gert, okkar skylda er að viðhalda lágmarksbjörgunarþjónustu í það minnsta og við höfum gert allt sem við getum til þess, munum halda áfram eins og kostur er en þessir aðilar verða að ljúka þessu máli,“ sagði Georg. Þegar Georg var spurður hvort hann teldi nauðsynlegt að stoppa verkfallið með lögum ef ekki næðust samningar áður en síðasta starfhæfa þyrlan færi í reglubundna skoðun um miðja næstu viku sagði hann „það er ekki mitt að svara því.“
Landhelgisgæslan Kjaramál Tengdar fréttir „Neyðarástand yfirvofandi“ hjá Landhelgisgæslunni Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. 19. nóvember 2020 16:20 Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13 Verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar hefst á miðnætti Verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. 5. nóvember 2020 23:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Erlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira
„Neyðarástand yfirvofandi“ hjá Landhelgisgæslunni Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. 19. nóvember 2020 16:20
Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13
Verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar hefst á miðnætti Verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. 5. nóvember 2020 23:16