Anna Hildur endurkjörin formaður SÁÁ Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 21. júní 2022 22:22 Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður og Þráinn Farestveit varaformaður SÁÁ. Vísir/Hulda Margrét Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ nú fyrr í kvöld og Þráinn Farestveit varaformaður sömuleiðis. Núverandi stjórn félagasamtakanna hélt velli þrátt fyrir mótframboð. 368 einstaklingar sóttu fundinn og fór hann vel fram að sögn varaformanns. „
Við erum mjög jákvæð, við höfum verið mjög bjartsýn og horfum auðvitað fram á það að efla starfið, opna félagið, það má breyta ýmsu til batnaðar,“ segir Þráinn Farestveit varaformaður samtakanna í samtali við fréttastofu. „Meirihluti þeirra sem sátu fundinn kýs þá stjórn sem hefur verið starfandi síðustu tvö ár og styður hana í þeim málefnum og gildum sem við leggjum fram.“ Þráinn segir núverandi stjórn vilja opna félagið meira. „Við viljum fá fólk úr öllum stéttum, fólk sem hefur starfað faglega að málefnum þessara skjólstæðinga frá öllum stöðum því að markmið okkar auðvitað er að samþætta þetta betur, það er að segja tengingin milli ríkis og borgar og sveitarfélaganna, eiga náið samtal um hvernig þessi vettvangur er, með því teljum við okkur geta unnið betur.“ Þráinn leggur áherslu á að vilji stjórnarinnar sé að hinn almenni borgari geti nálgast samtökin betur og án skilyrða „ef það er fólk sem hefur áhuga á að vinna með okkur þá viljum við þannig fólk.“ Fólk horfir til þess að við tókum rétta ákvörðun Þráinn segir sjálfsaflafé félagsins aldrei hafa verið meira og verði það til þess að opið verði á göngudeild og Vík í sumar en félagið hafi ekki getað kostað það áður. „Við teljum að það sýni sig að þrátt fyrir þessa ágjöf og umræðu og það hvernig hlutirnir voru svona svolítið erfiðir, þá studdi fólkið okkur samt og líklega betur þar sem ákvörðun núverandi framkvæmdastjórnar var sú að við myndum draga okkur út úr spilakassaágóða og lögðum það til hliðar. Urðum þar af auðvitað tugum milljóna í tekjur sem skilar sér svo aftur í því að fólk horfir til þess að við tókum rétta ákvörðun.“
Félagasamtök Heilbrigðismál Fíkn Tengdar fréttir „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Mikið hefur gengið á hjá SÁÁ síðustu mánuði. Deilur við Sjúkratryggingar Íslands, Einarsmálið svo kallaða þar sem fyrrum formaður varð uppvís að því að hafa keypt vændi. Fyrirhugað formannsframboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur sem síðan var dregið til baka vegna skítkasts og leiðinda. Óánægjuraddir að skrifa aðsendar greinar. 17. júní 2022 08:02 Anna Hildur og Þráinn vilja áfram leiða SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður hafa tilkynnt að þau gefi kost á sér til að halda áfram á næsta aðalfundi samtakanna. 17. maí 2022 14:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Erlent Fleiri fréttir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Allir forsetaframbjóðendur geti átt von á skrökvusögum um sig Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira
„Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Mikið hefur gengið á hjá SÁÁ síðustu mánuði. Deilur við Sjúkratryggingar Íslands, Einarsmálið svo kallaða þar sem fyrrum formaður varð uppvís að því að hafa keypt vændi. Fyrirhugað formannsframboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur sem síðan var dregið til baka vegna skítkasts og leiðinda. Óánægjuraddir að skrifa aðsendar greinar. 17. júní 2022 08:02
Anna Hildur og Þráinn vilja áfram leiða SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður hafa tilkynnt að þau gefi kost á sér til að halda áfram á næsta aðalfundi samtakanna. 17. maí 2022 14:36