Viljum vera ofar í töflunni Ester Ósk Árnadóttir skrifar 5. desember 2021 20:30 Jónatan Magnússon biðlar til dómara um að leyfa liði sínu að fara ofar í töflunni. Vísir/Hulda Margrét Jónatan Magnússon, þjálfari KA var að vonum ánæðgur með sína menn eftir tveggja marka sigur á Gróttu í KA heimilinu í kvöld. Lokatölur 31-29. „Ég er gríðarlega ánægður með sigurinn. Við mætum hérna sjóðandi heitu Gróttu liði, þeir með mikið sjálfstraust en við að leita að okkar. Gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik,“ sagði Jónatan eftir leik. „Við byrjum leikinn frábærlega. Ég var mjög ánægður hvernig við komum inn í leikinn, varnaleikurinn var mjög góður. Við hefðum mögulega geta verið með betri stöðu í hálfleik ef við hefðum geta haldið aðeins út en það kom smá hik hjá okkur. Skrítið að vera ekki með fleiri mörk í hálfleiknum en svo var þetta bara stál í stál í seinni hálfleik.“ KA leiddi allan leikinn og komst mest sjö mörkum yfir í fyrri hálfleik, 9-2. „Við vissum fyrirfram að þetta yrði mjög erfiður leikur hér í dag. Það munaði samt litlu að við hefðum geta keyrt alveg yfir þá en fyrst að það gekk ekki þá kom mjög gott áhlaup frá þeim. Heilt yfir var frammistaðan nóg til að vinna, mér fannst við eiga sigurinn skilið og örugglega erfitt fyrir Gróttu að koma hingað. Enn og aftur eru frábær stemmning á leikjum hjá okkur þrátt fyrir allt ruglið sem er í gangi í samfélaginu. Mér finnst að það ætti að vera fyrirsögnin á þessu, hversu vel áhorfendur létu sjá sig og studdu okkur, frábær stemmning.“ KA hefur náð í þrjá sigra í deildinni og hefur gengið verið brösulegt, liðið er í 10 sæti. „Það er gott að vinna, við spiluðum að mörgi leiti góðan leik á móti Haukum heima síðast en fáum ekkert út úr honum. Spilum svo ágætsleik á móti Selfoss í síðustu umferð en það var sama niðurstaða þess vegna er svo gott að fá þessi 2 stig því frammistaðan var góð, gott að fá sigurtilfinninguna.“ Þrátt fyrir nokkuð af töpuðum boltum í leiknum kom það ekki að sök. „Við erum með of margaða tapaða bolta í leik, stundum erum við ekki einu sinni undir pressu. Grótta er að spila mjög góða vörn og eru að setja lið í mjög erfiðar stöður og nokkrir af töpuðu boltunum í dag er út af því. Það er búið að vera mikið af áhyggjuefnum hjá okkur en í dag hef ég hins vegar engar áhyggjur. Í dag er ég bara ánægður að hafa unnið, búið að vera erfið vika og því er ég mjög stoltur af mínum mönnum að hafa klárað þetta í kvöld.“ Heimir Örn Árnason var kynntur inn í þjálfarateymi KA í vikunni en hann er uppalin í KA. „Hann kemur inn í þjálfarateymið til að styrkja það. Heimir hefur gríðarlega reynslu og mikla rödd og það gefur augaleið að hann kemur inn til að létta undir álagið á mér og Sverre. Ég er mjög ánægður með það. KA er stórt félag og við viljum vera ofar í deildinni heldur en við höfum verið. Þetta er ein leið í því.“ Framundan er leikur á móti HK í KA heimilinu næstkomandi föstudag. „Fyrir þennan leik lagðist það vel í mig en það leggst ennþá betur í mig núna. Basti er með ungt lið sem náði í stig í síðasta leik, þeir eins og Grótta koma með sjálfstraust inn í þann leik og við verðum að búa okkur undir það. Þetta er lið sem er að leita að sínum fyrsta sigri og við búum okkur vel undir þann leik. Við hlökkum til að fara að spila, hörku æfingarvika framundan,“ sagði Jónatan að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. KA Íslenski handboltinn Olís-deild karla Handbolti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sjá meira
„Ég er gríðarlega ánægður með sigurinn. Við mætum hérna sjóðandi heitu Gróttu liði, þeir með mikið sjálfstraust en við að leita að okkar. Gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik,“ sagði Jónatan eftir leik. „Við byrjum leikinn frábærlega. Ég var mjög ánægður hvernig við komum inn í leikinn, varnaleikurinn var mjög góður. Við hefðum mögulega geta verið með betri stöðu í hálfleik ef við hefðum geta haldið aðeins út en það kom smá hik hjá okkur. Skrítið að vera ekki með fleiri mörk í hálfleiknum en svo var þetta bara stál í stál í seinni hálfleik.“ KA leiddi allan leikinn og komst mest sjö mörkum yfir í fyrri hálfleik, 9-2. „Við vissum fyrirfram að þetta yrði mjög erfiður leikur hér í dag. Það munaði samt litlu að við hefðum geta keyrt alveg yfir þá en fyrst að það gekk ekki þá kom mjög gott áhlaup frá þeim. Heilt yfir var frammistaðan nóg til að vinna, mér fannst við eiga sigurinn skilið og örugglega erfitt fyrir Gróttu að koma hingað. Enn og aftur eru frábær stemmning á leikjum hjá okkur þrátt fyrir allt ruglið sem er í gangi í samfélaginu. Mér finnst að það ætti að vera fyrirsögnin á þessu, hversu vel áhorfendur létu sjá sig og studdu okkur, frábær stemmning.“ KA hefur náð í þrjá sigra í deildinni og hefur gengið verið brösulegt, liðið er í 10 sæti. „Það er gott að vinna, við spiluðum að mörgi leiti góðan leik á móti Haukum heima síðast en fáum ekkert út úr honum. Spilum svo ágætsleik á móti Selfoss í síðustu umferð en það var sama niðurstaða þess vegna er svo gott að fá þessi 2 stig því frammistaðan var góð, gott að fá sigurtilfinninguna.“ Þrátt fyrir nokkuð af töpuðum boltum í leiknum kom það ekki að sök. „Við erum með of margaða tapaða bolta í leik, stundum erum við ekki einu sinni undir pressu. Grótta er að spila mjög góða vörn og eru að setja lið í mjög erfiðar stöður og nokkrir af töpuðu boltunum í dag er út af því. Það er búið að vera mikið af áhyggjuefnum hjá okkur en í dag hef ég hins vegar engar áhyggjur. Í dag er ég bara ánægður að hafa unnið, búið að vera erfið vika og því er ég mjög stoltur af mínum mönnum að hafa klárað þetta í kvöld.“ Heimir Örn Árnason var kynntur inn í þjálfarateymi KA í vikunni en hann er uppalin í KA. „Hann kemur inn í þjálfarateymið til að styrkja það. Heimir hefur gríðarlega reynslu og mikla rödd og það gefur augaleið að hann kemur inn til að létta undir álagið á mér og Sverre. Ég er mjög ánægður með það. KA er stórt félag og við viljum vera ofar í deildinni heldur en við höfum verið. Þetta er ein leið í því.“ Framundan er leikur á móti HK í KA heimilinu næstkomandi föstudag. „Fyrir þennan leik lagðist það vel í mig en það leggst ennþá betur í mig núna. Basti er með ungt lið sem náði í stig í síðasta leik, þeir eins og Grótta koma með sjálfstraust inn í þann leik og við verðum að búa okkur undir það. Þetta er lið sem er að leita að sínum fyrsta sigri og við búum okkur vel undir þann leik. Við hlökkum til að fara að spila, hörku æfingarvika framundan,“ sagði Jónatan að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
KA Íslenski handboltinn Olís-deild karla Handbolti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti