Atvinnuflugmenn segja ákvörðun Jóns óforsvaranlega Bjarki Sigurðsson skrifar 3. febrúar 2023 11:00 Atvinnuflugmenn gagnrýna ákvörðun Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra harðlega. Vísir/Vilhelm Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sé óforsvaranleg og ólögleg. Félagið mun mögulega leita atbeina Félagsdóms gerist þess þörf.
Á miðvikudaginn var greint frá því að hætta ætti rekstri TF-SIF, segja öllum flugmönnum hennar upp og selja vélina. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur verið gagnrýndur fyrir ákvörðunina og hefur formaður fjárlaganefndar boðað til aukafundar vegna sölunnar. Í ályktun sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sendi frá sér í gær segir að ákvörðunin sé óverjanleg með tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga og samstarfs íslenska ríkisins við önnur ríki. Ákvörðunin vegi að þjóðaröryggisstefnu Íslands. „Í ljósi þess má vænta að ráðherra hafi heldur ekki upplýst þjóðaröryggisráð um áform sín áður en hann réðist til verka og þannig brugðist skyldum sínum samkvæmt lögum um þjóðaröryggisráð,“ segir í ályktuninni. Þá kemur fram að Landhelgisgæslan geti ekki uppfyllt skyldur sínar án sérútbúinnar flugvélar. Leitar- og björgunarsvæði Íslands er um 1,9 milljónir ferkílómetra. „Hvorki í lögum um Landhelgisgæsluna né í lögum um loftferðir er að finna heimildir til að framselja skyldur stofnunarinnar um öryggisgæslu og löggæslu á hafinu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, samninga við önnur ríki og ákvæði laga,“ segir í ályktuninni. FÍA útilokar ekki að uppsagnir á flugmönnum vélarinnar fari fyrir Félagsdómi komi til þess. Að mati félagsins eru uppsagnirnar grimm atlaga að starfsmönnum Landhelgisgæslunnar þar sem engin heimild er í fjárlögum fyrir sölunni.
Landhelgisgæslan Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2. febrúar 2023 16:37 Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. 2. febrúar 2023 12:25 Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2. febrúar 2023 11:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Sjá meira
Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2. febrúar 2023 16:37
Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. 2. febrúar 2023 12:25
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2. febrúar 2023 11:33